Mikill erill hjá lögreglu í kvöld

mbl.is/​Hari

Mikill erill er búinn að vera hjá lögreglu þar sem af er kvöldvaktinni en hátt í 60 verkefni komu inn til afgreiðslu sem telst nokkuð mikið að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Vopnað ráð var framið við verslun við Miklubraut. Hinn handtekni hafði ógnað brotaþola með hníf en líkamlegur skaði hlaust af og viðkomandi náði engum munum af þeim sem hann reyndi að ræna. Hinn handtekni bíður yfirheyrslu í fyrramálið.

Þrisvar sinnum var lögregla kölluð til vegna fólks sem ók undir áhrifum fíkniefna eða annarra vímuefna. Auk þess var töluvert um aðstoðarbeiðnir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert