Fréttaannáll 2010: mest lesnu fréttir janúar

[ ársins  |  janúar  |  febrúar  |  mars  |  apríl  |  maí  |  júní  |  júlí  |  ágúst  |  september  |  október  |  nóvember  |  desember ]
1
Innlent | mbl | 31.1 | 8:55

Lést á Langjökli

Mynd 410011

Konan sem féll í sprungu á Langjökli í gær var látin þegar björgunarsveitarfólk kom niður til hennar. Sjö ára sonur hennar, sem einnig féll ofan í sprunguna, var með meðvitund þegar komið var að honum. Drengurinn liggur á Landspítlanum en hann fór í aðgerð í gærkvöldi. Meira

2
Íþróttir | mbl | 25.1 | 16:32

Jafntefli gegn Króötum

Snorri Steinn Guðjónsson.

Ísland og Króatía gerðu jafntefli, 26:26, í milliriðli Evrópumeistaramóts karla í handknattleik í dag, í Wiener Stadthalle í Austurríki. Króatar eru þá með 5 stig og Íslendingar 4 stig í tveimur efstu sætum riðilsins. Meira

3
Íþróttir | mbl | 28.1 | 16:41

Íslendingar léku með sorgarbönd

Ólafur Stefánsson fyrirliði ræðir við landsliðshópinn í...

Íslenska landsliðið í handknattleik lék með sorgarbönd í leiknum gegn Noregi á Evrópumeistaramótinu í dag vegna andláts systur Gunnars Magnússonar aðstoðarþjálfara liðsins. Meira

4
Innlent | mbl | 21.1 | 19:41

Margir missa vinnuna á RÚV

Ríkisútvarpið

Mörgum starfsmönnum Ríkisútvarpsins var sagt upp í dag og búist er við að enn fleiri fá uppsagnarbréf á morgun. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var þremur starfsmönnum Kastljóssins sagt upp störfum. Meira

5
Innlent | mbl | 22.1 | 17:34

Fannst látinn í Hvalfirði

Karlmaður á fertugsaldri sem leitað hefur verið fannst látinn í Hvalfirði í dag. Ekkert hafði spurst til mannsins frá því um miðjan dag í gær en björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út í morgun til leitar eftir að bíll mannsins fannst í Botnsdal. Meira

6
Íþróttir | mbl | 28.1 | 16:28

Ísland í undanúrslit á EM

Borge Lund og Arnór Atlason eigast við í leik Íslands og Noregs í Vín.

Íslendingar leika til undanúrslit á Evrópumeistaramótinu í handknattleik eftir 35:34 sigur gegn Norðmönnum. Það skýrist síðar í dag hverjir mótherjar Íslands verða en eins staðan er nú verða það annað hvort heims- og ólympíumeistarar Frakka eða Pólverjar. Eins gætu Spánverjar tryggt sér sæti í undanúrslitum. Meira

7
Íþróttir | mbl | 17.1 | 16:43

Ísland átti aldrei von gegn Frökkum

Frá viðureign Íslendinga og Frakka á Ólympíuleikunum í Peking 2008.

Frakkar unnu öruggan sigur, 35:25, á Íslandi í úrslitaleik Parísarmótsins í handknattleik í Bercy-höllinni í dag. Franska liðið var með forystuna allan leikinn en því íslenska tókst að minnka muninn í tvígang í eitt mark í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var, 17:13. Í síðari hálfleik skildu leiðir liðanna og Frakkar réðu lögum og lofum og juku smátt og smátt við forystu sína allt til leiksloka. Meira

8
Innlent | mbl | 25.1 | 17:54

Fannst látinn í Norðurá

Karlmaður fannst látinn í Norðurá í Skagafirði nú á sjötta tímanum. Mannsins hefur verið leitað í allan dag, en hans hafði verið saknað frá því í gær. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Meira

9
Innlent | mbl | 11.1 | 17:17

Lést af slysförum í Noregi

Karlmaður á sjötugsaldri lést í dag þegar hann féll útbyrðis úr fiskibáti, sem var á leið til hafnar í vesturströnd Noregs. Fram kemur á fréttavefjum norska ríkisútvarpsins og Aftenposten, að maðurinn hafi verið íslenskur ríkisborgari. Meira

10
Innlent | mbl | 8.1 | 8:00

Hinir þrjósku Íslendingar

Hattersley lávarður.

Roy Hattersley, fyrrverandi aðstoðarutanríkisráðherra Bretlands, gleymir aldrei meðan hann lifir hve Íslendingar voru erfiðir viðfangs í landhelgisdeilunni við Breta. Hattersley, sem nú er orðinn lávarður, hefur á undanförnum misserum skrifað greinar í bresk blöð þar sem hann deilir þessari reynslu með löndunum sínum og reynir að útskýra hvers vegna Íslendingar séu jafn þrjóskir og ósveigjanlegir og raun beri vitni. Meira

11
Innlent | Morgunblaðið | 12.1 | 5:30

Var veitt hjartahnoð eftir hjartaáfall í ræktinni

Úr líkamsræktarstöð World Class í Laugum í Reykjavík.

Betur fór en á horfðist þegar karlmaður á besta aldri fékk hjartaáfall í líkamsræktarstöð World Class á Seltjarnarnesi sl. sunnudag. Meira

12
Innlent | mbl | 13.1 | 21:59

Fátæka Ísland fyrst til Haítí

Mikil þörf er fyrir aðstoð á jarðskjálftasvæðinu á Haítí.

Fátæka Ísland er fyrst til Haítí, segir í frétt um för íslensku björgunarsveitarinnar til Haítí, á vef norska ríkisútvarpsins, NRK. Meira

13
Innlent | mbl | 18.1 | 20:05

Lést samstundis í vinnuslysi

Mynd 410009

Karlmaður á þrítugsaldri lést samstundis, að því er talið er, þegar hann féll niður af vinnupöllum við nýbyggingu við Sefgarða á Seltjarnarnesi um fjögur leytið í dag. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Meira

14
Veröld/Fólk | mbl | 26.1 | 7:55

Hvernig Elin komst að ótryggð Tigers

Hjónin Elin Nordegren og Tiger Woods árið 2008.

Lítið er vitað hvað þau hjónin Tiger Woods og Elin Nordegreen hafa aðhafst á nýja árini. Bandarískir fjölmiðlar hafa því einbeitt sér að því að rannsaka aðdraganda þess að Woods lenti í bílslysi utan við heimili sitt 27. nóvember. Vefmiðillinn Daily Beast, sem sérhæfir sig í fréttum af fræga fólkinu, segist nú vera búinn að raða saman atburðarásinni þegar Nordegren uppgötvaði að eiginmaður hennar var ekki allur þar sem hann var séður. Meira

15
Íþróttir | mbl | 27.1 | 7:22

EM: Líður eins og svikara

Norðmaðurinn Borge Lund sækir að vörn Dana en til varnar er...

Norðmenn eru í sárum eftir ósigurinn gegn Dönum í milliriðli 1 á Evrópumótinu í handknattleik í Vínarborg í gærkvöld. Norðmenn höfðu undirtökin allan tíman en Danir náðu að komast einu sinni yfir og það var með marki úr vítakasti sem Anders Eggert Jensen skoraði úr tveimur sekúndum fyrir leikslok. Rétt áður hafði Kasper Hvidt markvörður Dana varið vítakast frá Håvard Tvedten. Meira

16
Erlent | mbl | 7.1 | 11:33

Andlát ungs lottóvinningshafa rannsakað

Mynd 487116

Breska lögreglan rannsakar nú andlát ungs manns sem varð þekktur á einni nóttu í Bretlandi árið 1997 þegar hann varð yngsti lottóvinningshafi landsins, þá 17 ára gamall. Meira

17
Erlent | AFP | 19.1 | 19:48

Verða að rífa sumarhús sitt

Rústir hinnar fornu borgar Kurion í nágrenni við Limassol á Kýpur.

Dómstóll í London hefur komist að þeirri niðurstöðu að bresku pari beri að rífa sumarhús sitt á norðurhluta Kýpur. Niðurstaða dómstólsins gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir þúsundir annarra sumarhúsaeigenda á eyjunni. Meira

18
Íþróttir | mbl | 26.1 | 16:28

Átta marka sigur á Rússum

Ólafur Stefánsson í leiknum gegn Rússum í Vín.

Ísland vann Rússland með átta marka mun, 38:30, í milliriðli 1 í Evrópukeppni karla í handknattleik í dag. Íslenska liðið er þar með komið með 6 stig í milliriðlinum og er í efsta sæti sem stendur. Við blasir hreinn úrslitaleikur gegn Norðmönnum um sæti í undanúrslitum á fimmtudaginn. Meira

19
Erlent | mbl | 13.1 | 14:19

Heiðarlegur leigubílstjóri skilaði milljónum

Leigubílar í New York.

Leigubílstjóri frá Bangladess, sem ekur um götur New York borgar, lagði mikið á sig til að finna farþega sem gleymdi mörg þúsund dölum í aftursæti leigubifreiðarinnar. Meira

20
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 18.1 | 12:04

Óskaði eftir skilnaði á dánarbeðnumMyndskeið

Fréttamynd

Leikarinn Dennis Hopper á að hafa óskað eftir skilnaði frá eiginkonu sinni þar sem hann liggur fyrir dauðanum. Hopper, sem meðal annars lék í kvikmyndinni Apocalypse Now, er talinn eiga einungis einn mánuð eftir ólifaðan en hann greindist með krabbamein á síðasta ári. Meira

21
Innlent | Morgunblaðið | 19.1 | 5:30

Andlát: Guðmundur Lárusson

Guðmundur Lárusson frjálsíþróttamaður lést 14. janúar sl. á 85. aldursári. Guðmundur fæddist á Eyrarbakka 23. nóvember 1925. Hann var af gullaldarkynslóð íslenskra frjálsíþróttamanna sem gerði garðinn frægan á árunum 1948-1956. Meira

22
Innlent | mbl | 5.1 | 11:07

Staðfestir ekki Icesave-lögMyndskeið

Ólafur Ragnar Grímsson á Bessastöðum í dag.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að synja nýsettum lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinga staðfestingu. „Nú fær þjóðin valdið og ábyrgðina í sínar hendur," sagði Ólafur Ragnar meðal annars í yfirlýsingu. Meira

23
Innlent | mbl | 10.1 | 11:57

Ísland eitt og yfirgefið

Miðborg Osló. Konungshöllin í bakgrunni.

Aftenposten birtir í dag grein um Ísland Ræðir blaðið við nokkra Íslendinga sem varpa ljósi bæði á sögu landsins og Icesave-málið. Fram kemur sú skoðun hjá Styrmi Gunnarssyni, fyrrum ritstjóra, að Íslendingar verði að fara að venja sig við að líta á Norðmenn sem helstu bandamenn sína. Meira

24
Innlent | mbl | 7.1 | 0:21

Ólafur í kröppum dansi á BBC

Ólafur Ragnar Grímsson les yfirlýsingu sína um að hann...

„Ísland mun standa við skuldbindingar sínar,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands í viðtali við BBC í kvöld. „Það eina sem ég hef gert er að gefa þjóðinni tækifæri til að hafa lokaorðið í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem er í samræmi við grundvallaratriði lýðræðisins.“ Meira

25
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 12.1 | 6:30

Ragnhildur Steinunn og Eva María óléttar

Ragnhildur Steinnunn og Eva María í peysunum sem vöktu...

Sjónvarpskonan og fegurðardrottningin Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og unnusti hennar Haukur Ingi Guðnason, knattspyrnumaður í liði Keflavíkur og kennari í sálfræði við Háskóla Íslands, eiga von á sínu fyrsta barni. Meira