Maðurinn sem veiktist um borð í skipi fyrir utan mynni Hafnarfjarðarhafnar fyrr í kvöld er látinn. Óskað var eftir aðstoð TF-GNÁ, þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ekki er hægt að greina frá dánarorsök mannsins að svo stöddu né aldri hans eða þjóðerni. Meira
Læknar á Queen Mary's spítalanum í Kent í Englandi eru furðu lostnir yfir hvítu barni sem svört hjón eignuðust á dögunum. Læknarnir segja Nmachi ekki vera albinóa og hvorugt foreldra eiga hvíta forfeður. Meira
Það sviplega slys varð snemma í morgun að ung kona féll fyrir björg í svokölluðum Urðum, sem eru í fólkvangi austan við Neskaupstað. Fall stúlkunar var um 18 til 20 metrar, hún var látin þegar að var komið. Að svo stöddu er ekki hægt að gefa upp nafn hinnar látnu. Meira
Borin hafa verið kennsl á fertugan bílstjóra frá Lettlandi sem virðist hafa valdið banaslysi við Holsted á Jótlandi í Danmörku í gær. Fjögurra manna fjölskylda frá Esbjerg fórst í slysinu auk Lettans. Hann hafði verið í heimsókn hjá bróður sínum og var á heimleið þegar slysið varð. Meira
„Mér líður eins og ég sé ekki ennþá velkomin. Ég held að þetta fólk sé bara þannig að þau vilja ekki vera þekkt fyrir að eiga tengdadóttur eins og mig,“ segir Vala Grand um tengdaforeldra sína í viðtali í nýjasta tölublaði Monitor sem kom út í morgun. Meira
Lögregla í Valby, úthverfi Kaupmannahafnar, handtók í morgun 29 ára gamlan karlmann, sem grunaður er um að hafa nauðgað unnustu sinni hrottalega. Konan, sem er 24 ára gömul, var flutt á sjúkrahús og er hún sögð vera í lífshættu. Meira
„Karlmenn á Íslandi eru bara svo graðir og þeir eru forvitnir. Ég held að þeir vilji vita hvernig það er að vera með mér," segir Vala Grand í opinskáu viðtali í nýjasta tölublaði Monitor sem kom út í morgun. Vala gekkst undir kynleiðréttingaraðgerð á dögunum og er nú orðin kona. Meira
Bandarísk kona hefur verið dæmd í 9 ára fangelsi fyrir að nauðga syni sínum. Konan gaf drenginn, sem nú er 16 ára, til ættleiðingar en leitaði hann síðan uppi fyrir tveimur árum með aðstoð Facebook. Meira
Ungur maður fannst látinn í sal kvikmyndahúss í Wellington á Nýja-Sjálandi eftir að sýningu lauk á kvikmyndinni "The Twilight Saga: Eclipse". Meira
Konan, sem lést af slysförum í Norðfirði í gærmorgun hét Ástríður Tómasdóttir. Hún var fædd 6. október 1989 og var til heimilis að Reynimel 24 í Reykjavík. Meira
Íslendingar eru hvattir til að gefa Ómari Ragnarssyni eitt þúsund krónur í sjötugs afmælisgjöf sem þökk fyrir ómetanleg störf í þágu Íslenskrar náttúru. Meira
Lögregla hefur lokið rannsókn á umferðarslysi er átti sér stað á Hafnarfjarðarvegi norðan Arnarnesbrúar að morgni 18. desember á síðasta ári þegar þrír karlmenn létu lífið. Niðurstaðan er að ökumaður annars bílsins hafi fengið hjartaáfall og því misst stjórn á bíl sínum. Meira
Samkvæmt nýrri könnun vilja um 48% kvenna ekki stunda kynlíf kviknaktar heldur klæðast að minnsta kosti einni flík. Ástæðuna segja þær vera til að auka sjálfstraust sitt. Meirihluti karlmanna voru þó ekki sammála. Meira
„Ég ætla að tékka á því, þegar ég er búin að láta setja júllur á mig, hvort ég megi taka þátt í Ungfrú Ísland. Ef ég er með réttindi eins og kona þá ætti ég að fá að taka þátt í Ungfrú Ísland,“ segir Vala Grand í viðtali í nýjasta tölublaði Monitor. Meira
Kvikmyndagerðarmanninum Davíð Jónssyni brá heldur betur í brún er hann skoðaði yfirlitið á einkabankanum sínum hjá Landsbankanum í vikunni. Taldist hann til neysluglaðari manna hjá bankanum enda hljóðaði síðasta færsla upp á hvorki meira né minna en 8.500 milljarða króna. Meira
Fjögurra ára gamall drengur hefur fundist látinn í þurrkara á heimili sínu í Ashbourne í Derbyskíri í Bretlandi. Meira
Átta ára dreng var bjargað úr kviksyndi rétt vestan við Gilsá undir Þórólfsfelli síðdegis í dag. Hann var sokkinn upp fyrir mitti á öðrum fæti og var fastur þegar honum var bjargað og orðinn býsna kaldur. Lögregla og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli komu drengnum til bjargar. Meira
Kolkrabbinn Páll reyndist sannspár þegar hann spáði spænskum sigri í viðureign Þjóðverja og Spánverja í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í kvöld. Þýska þjóðin snérist hins vegar gegn Páli eftir spádóminn og vildu sumir að kolkrabbanum yrði breytt í sjávarréttasalat. Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld mann sem er grunaður um að hafa stolið tjaldvagni við búðina Ellingsen aðfararnótt miðvikudags og fellihýsi við Víkurverk þann 9. júlí síðastliðinn. Meira
Þrír ungir menn syntu yfir Hvítá í Árnessýslu í ölæði nú í nótt. Mennirnir höfðu verið að skemmta sér ásamt fleirum á tjaldstæði í Laugarási þegar þeir ákváðu að gera þetta. Eftir að þeir höfðu verið fjarverandi í eina klukkustund fóru félagar þeirra að hafa áhyggjur af þeim og hringdu á lögreglu. Meira
Maðurinn sem lést eftir að sprenging varð í ofni járnblendiverksmiðju Elkem hét Óskar Stefánsson. Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú nágrannaerjur í Aratúni í Garðabæ en ásakanir hafa komið fram um að ofbeldi og hótunum hafi verið beitt. Deilan hefur staðið á milli í nokkur ár og mun upphaflega hafa snúist um bílskúr sem stóð til að byggja. Nú hafa hins vegar verið lagðar fram nokkrar kærur um líkamsárásir og fleiri brot. Meira
Tap Brasilíu fyrir Hollandi í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu í Suður-Afríku virðist hafa haft skelfilegar afleiðingar. Ungur fótboltaáhugamaður er talinn hafa svipt sig lífi vegna úrslitanna. Meira
Japönsk kona sem grunuð er um að hafa orðið fimm ára dóttur sinni að bana með því að kyrkja hana hefur nú játað fyrir lögreglunni að hún hafi verið vön að loka dóttur sína inni í þvottavél meðan vélin var í gangi. Meira
Raoul Moat, sem lögregla á Englandi leitaði að í viku eftir að hann myrti unnusta fyrrum sambýliskonu sinnar, skaut sig til bana í nótt eftir nokkurra klukkustunda langt umsátur lögreglu. Meira