Fréttaannáll 2010: mest lesnu fréttir júní

[ ársins  |  janúar  |  febrúar  |  mars  |  apríl  |  maí  |  júní  |  júlí  |  ágúst  |  september  |  október  |  nóvember  |  desember ]
1
Innlent | mbl | 1.6 | 23:33

18 ára fékk 100% lán til að kaupa rándýran bíl

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra.

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, sagði þegar hann mælti á Alþingi í kvöld fyrir frumvarpi um skilmálabreytingar gengistryggðra bílalána, að fyrir hrun hefðu samningar við einstaklinga um einkaleigu eða kaupleigu hefðu oft verið gerðir án þess að eignaleigufyrirtækin könnuðu gjaldfærni þeirra sem lánin tóku. Meira

2
Erlent | mbl | 1.6 | 8:12

Hryllingur á bensínstöð

Kona er í lífshættu eftir að karlmaður kveikti í henni á bensínstöð í Ástralíu í dag. Árásarmaðurinn stakk konuna áður en hann kveikti í henni og bifreið hennar í Melbourne. Að sögn vitna sagði árásarmaðurinn þeim að láta konuna brenna þegar þau reyndu að aðstoða hana. Lögreglan hvatti vitni að hryllingnum til að leita sér áfallahjálpar. Meira

3
Innlent | mbl | 19.6 | 20:03

Banaslys við Gilsfjörð

Mynd 410009

Kona á miðjum aldri lést í bifhjólaslysi nú síðdegis. Slysið varð rétt við bæinn Litla Holt í Dalabyggð. Lögregla og björgunaraðilar voru kölluð út klukkan 17:30 ásamt þyrlu landhelgisgæslunnar. Meira

4
Erlent | mbl | 8.6 | 20:29

Pólverjar ætla að gelda barnaníðinga

Dæmdir barnaníðingar gangast undir lyfjameðferð til...

Tekið hafa gildi lög í Póllandi sem gefa heimild til þess að sumir barnaníðingar og dæmdir nauðgarar verði látnir gangast undir geldingu með lyfjameðferð. Meira

5
Innlent | mbl | 30.6 | 11:45

Starfsmaðurinn er látinn

Sprenging varð í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga í gærkvöld

Maður sem slasaðist þegar sprenging varð í ofni Járnblendiverksmiðju Elkem í gær er látinn. Maðurinn, sem var reyndur starfsmaður, brenndist illa í sprengingunni og lést af sárum sínum á Landspítalanum í Fossvogi. Meira

6
Innlent | mbl | 22.6 | 12:55

Nauðgaði 17 ára stúlku

Stykkishólmur.

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi fyrr í þessum mánuði þrítugan karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Honum var einnig gert að greiða fórnarlambi sínu, 17 ára stúlku, átta hundruð þúsund krónur í miskabætur. Meira

7
Innlent | mbl | 15.6 | 10:51

Rætt um brúnku Árna Páls á Alþingi

Árni Páll er með gen sem gera hann dökkan.

Umræður spunnust í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun um litarhaft Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra. Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknar, benti m.a. á að Árni Páll hefði ekki tekið til máls í umræðum um bann við ljósabekkjanotkun unglinga. Meira

8
Innlent | mbl | 10.6 | 17:20

Gaf sjúkrahúsinu 45 milljónir

Sjúkrahúsið á Akureyri.

Sjúkrahúsið á Akureyri greinir frá því að einstaklingur, sem vilji ekki láta nafn síns getið, hafi fært Gjafasjóði sjúkrahússins 45 milljónir króna, sem verði varið til að kaupa á tækjum og búnaði. Meira

9
Innlent | mbl | 6.6 | 15:01

Áfall að sjá ástand Þórsmerkur

Frá Þórsmörk.

„Það er eiginlega ekki hægt að segja að maður fari þarna að njóta náttúrunnar eins og maður hefur gert inni í Þórsmörk, en í staðinn fer maður til að sjá þessa breytingu á landslaginu og umhverfinu," segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Þykkt öskulag er nú yfir Þórsmörkinni. Meira

10
Veröld/Fólk | mbl | 14.6 | 21:32

Neyddur til að giftast kú

Kýrin var alsaklaus

Táningsdrengur á Bali reyndi að hafa mök við kú og þurfti að taka afleiðingum þess. Þorpsbúar Yeh Embang gripu Ngurah Alit, 18 ára dreng, nakinn aftan við kú á hrísgrjónaakri. Meira

11
Íþróttir | mbl | 5.6 | 18:51

Upp úr sauð í Breiðholtinu

Páll Guðlaugsson þjálfari Fjarðabyggðar.

Upp úr sauð eftir leik ÍR og Fjarðabyggðar í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Pétur Guðmundsson dómari leiksins gaf leikmönnum og þjálfurum Fjarðabyggðar þrisvar sinnum rauða spjaldið og átta sinnum gula spjaldið. Meira

12
Innlent | Morgunblaðið | 9.6 | 5:30

Kvartað yfir detox til landlæknis

Jónína Benediktsdóttir.

Landlæknir hefur fengið á annan tug aðfinnslna og kærumála vegna svonefndrar detox-meðferðar sem Jónína Benediktsdóttir býður upp á. Meira

13
Innlent | mbl | 23.6 | 1:00

Bruðlurum bjargað

Þingholtin séð frá Hallgrímskirkjuturni. Krafa er uppi í...

„Það eru alltaf tvær hliðar á medalíunni og menn mega ekki gleyma því,“ segir Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður um þau ummæli þingmannanna Helga Hjörvars og Einars K. Guðfinnssonar að dómur Hæstaréttar um gengislán gefi tilefni til að endurskoða verðtryggð húsnæðislán. Meira

14
Innlent | mbl | 16.6 | 16:20

Gengistryggingin dæmd óheimil

Hæstiréttur Íslands.

Hæstiréttur Íslands kvað rétt í þessu upp dóma þess efnis að Lýsingu hf. og SP-fjármögnun hefði ekki verið heimilt samkvæmt lögum að binda veitt lán gengi erlendra gjaldmiðla. Sker þetta úr þeirri réttaróvissu sem skapast hefur um svokölluð myntkörfulán. Meira

15
Veröld/Fólk | mbl | 4.6 | 8:20

Whitney Houston gekk fram af Dönum

Whitney Houston nýlega á tónleikum.

Ekki er hægt að segja, að bandaríska söngstjarnan Whitney Houston hafi slegið í gegn þegar hún hélt tónleika Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Ekki var langt liðið á tónleikana þegar gestir fóru að tínast úr salnum og gagnrýnandi Berlingske Tidende gefur tónleikanum 0 stjörnur. Meira

16
Innlent | mbl | 6.6 | 8:43

Harður árekstur á Miklubraut

Áreksturinn var mjög harður, alveg við fjölbýlishúsin á Miklubraut.

Slys varð á Miklubraut við Rauðarárstíg í Reykjavík um klukkan sjö í morgun. Ökumaður missti stjórn á bíl sínum, þar sem hann ók í austurátt og hafnaði á tveimur kyrrstæðum bílum, kastaði öðrum þeirra á hús og valt sjálfur. Einn var fluttur á slysadeild. Meira

17
Innlent | mbl | 9.6 | 20:29

Banaslys á Látrabjargi

Frá Látrabjargi

Ferðamaðurinn sem féll í Látrabjargi í kvöld er látinn. Verið er að flytja líkið með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. Maðurinn var þýskur og á miðjum aldri, hér á ferðalagi með konu sinni. Hann féll þegar hann var að taka myndir á bjargbrúninni en ekki er vitað nánar hvernig það gerðist Meira

18
Innlent | mbl | 12.6 | 16:43

Aðeins 45 cm í brúargólfið

Flóð í Svaðbælisá.

Aðeins eru 45 cm frá botni Svaðbælisár og upp í brúargólfið. Dofri Eysteinsson framkvæmdastjóri Suðurverks, segir að setja þurfi 100 milljónir í að hreinsa úr farvegi árinnar og laga varnargarða. Meira

19
Innlent | mbl | 10.6 | 10:53

Maður fannst látinn í Grafarholti

Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn á göngustíg í Grafarholti snemma í morgun. Vegfarandi kom að manninum og gerði viðvart. Að sögn lögreglu eru grunnir yfirborðsáverkar á líkinu, en grunur leikur að á maðurinn hafi fallið. Málið er í rannsókn. Meira

20
Innlent | mbl | 13.6 | 12:03

Gunnlaugur setti heimsmet

Gunnlaugur Júlíusson kominn í mark eftir að hafa hlaupið...

Gunnlaugur Júlíusson langhlaupari hefur sett nýtt met þegar hann lauk við Comrades-hlaupið í S-Afríku. Gunnlaugur er eini maðurinn í heiminum sem hlaupið hefur fjögur svokölluð últrahlaup. Þetta eru London-Brighton, Comrades, Western States og Spartathlon. Meira

21
Veröld/Fólk | mbl | 8.6 | 14:19

Afgreiddi 303 konur á klukkustundMyndskeið

Fréttamynd

Förðunarmeistarinn Rick DiCecca komst í Heimsmetabók Guinness þegar hann litaði varir á 303 konum á einni klukkustund. Geri aðrir betur. Meira

22
Veröld/Fólk | mbl | 25.6 | 20:07

Fann eiganda sinn í öðru landi

Kötturinn Karim lagði á sig langt ferðalag til að...

Það tók köttinn Karim ekki nema tvö ár að elta uppi fyrrum eigendur sína sem fluttu 3.200 kílómetra í burtu, frá Úsbekistan til Rússlands. Meira

23
Erlent | mbl | 18.6 | 16:33

Harmleikur í Danmörku

Frá Jótlandi.

Þrír létust og 36 eru slasaðir eftir að vagn með ferðamönnum valt nærri ströndinni í Mandø á Suður-Jótlandi. Sjö farþeganna voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsum í Esbjerg, Óðinsvéum og Aabenraa. Meira

24
Innlent | mbl | 19.6 | 15:45

Kafari lést á Þingvöllum

Maður lést við köfun á Þingvöllum í dag.

Franskur kafari um þrítugt lést eftir köfunarslysi í Silfru á Þingvöllum í dag. Lögregla, sjúkralið, sérsveitarkafarar, kafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins svo og björgunarsveitir frá Árborg og Hveragerði fóru þegar á stað eftir að útkall barst. Meira

25
Íþróttir | mbl | 21.6 | 13:19

Markamet í stórsigri Portúgals

Meireles skoraði fyrsta mark dagsins eftir sendingu frá...

Portúgal gerði sér lítið fyrir í dag og vann 7:0 sigur á Norður-Kóreu í G-riðli heimsmeistarakeppni karla í knattspyrnu sem fram fer í Suður-Afríku. Staðan í hálfleik var 1:0. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is. Meira