Á miðnætti í kvöld, laugardagskvöld, rennur út frestur til að skipta um félag í fótboltanum hér á landi. Þá verður lokað fyrir félagaskipti til 15. júlí. Mbl.is fylgist jafnóðum með breytingunum á liðunum í tveimur efstu deildum karla: Meira
Fertugur íslenskur karlmaður drukknaði í nótt við sjósund hjá Stykkishólmi. Að sögn lögreglu lagðist maðurinn til sunds um kl. 23.00 frá tanga sunnan við sjúkrahúsið en þar er sterkur straumur. Þegar hann skilaði sér ekki hófst leit. Líkið fannst um tvöleytið í sjónum um einn km frá tanganum. Meira
Bandarískum menntaskólakennara hefur verið vikið tímabundið frá störfum á meðan rannsakað er hvort hann hafi látið viðgangast að tveir nemendur höfðu kynmök í skólastofu meðan á kennslutíma stóð. Meira
Vísindamenn við University College London segja í skýrslu, að mjög líklegt sé að eldfjalli Katla byrji að gjósa í náinni framtíð og slíkt gos gæti valdið mun meiri truflunum á flugumferð í Evrópu og víðar en gosið í Eyjafjallajökli. Meira
Bresk móðir sem legið hefur undir ámæli fyrir að vera með fimm ára son sinn í brjósti vísar allri gagnrýni á bug. Í samtali við breska götublaðið Daily Mirror segist Amanda Hurst sem er 29 ára og komin sjö mánuði á leið ekki hafa gert neitt rangt. Meira
Drengur á fjórða ári lést í gær á Landspítalnum eftir slys í leiktæki við fjölbýlishús í Grafarvoginum síðdegis á laugardag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn slyssins og ekki hægt að greina nánar frá því að svo stöddu.
Mikið sprengigos er í gangi í Eyjafjallajökli en vísbendingar eru um að heldur hafi dregið úr virkninni frá því hún náði hámarki 13. maí. Töluvert gjóskufall er í nærsveitum og má búast við áframhaldandi gjóskufalli. Búast má við töluverðum sveiflum í styrk gossins. Meira
Guðrún Elísa Ólafsdóttir, fv. varaformaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að morgni hvítasunnudags, 23. maí sl. Meira
Útför Kristófers Darra Ólafssonar, þriggja ára drengs sem lést af slysförum á gjörgæsludeild Landspítalans 17. maí, fer fram frá Grafarvogskirkju á morgun, föstudag, klukkan 13. Meira
Ungmenni í Bretlandi og Bandaríkjunum virðast í auknum mæli leggja stund á drykkjuleik sem felur í sér að hella vodka í augun á sér. Á það að tryggja mesta ölvun á sem stystum tíma. Þegar eru komin fram tilvik þar sem þátttakendur sköðuðu augu sín til frambúðar. Meira
Argentínskur karlmaður sem ákærður hafði verið fyrir að eignast sjö börn með dóttur sinni lét lífið meðan hann sat í gæsluvarðhaldi og beið réttarhalds. Meira
Eldgosinu í Eyjafjallajökli er ekki lokið en stórlega hefur dregið úr því undanfarna daga. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er svartaþoka yfir jöklinum og því erfitt að sjá gosmökkinn í vefmyndavélum. Hins vegar sjáist hann í vefmyndavélum á Þórólfsfelli. Meira
KR og Selfoss mættust í úrvalsdeild karla í knattspyrnu, Pepsideildinni, á KR-vellinum klukkan 19.15. Selfoss kom gífurlega á óvart og skellti KR 2:1. Ingólfur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson komu Selfossi í 2:0 en Baldur Sigurðsson minnkaði muninn undir lokin. Rauða spjaldið fór tvívegis á loft í leiknum. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is. Meira
Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur telur sennilegt að sprunga sé undir Eyjafjallajökli. Jarðskjálftar sem urðu þar á föstudaginn raði sér á nokkuð reglulega línu frá suðvestri til norðausturs. Meira
Sérstakur saksóknari fór fram á það í dag að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, í tveggja vikna gæsluvarðhald. Dómari ákvað að taka sér lögmæltan frest til uppkvaðningar og á meðan er Hreiðar vistaður í fangaklefa lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Meira
Rúmlega fimmtugur íslenskur karlmaður lést á sjúkrahúsi í Danmörku á föstudaginn eftir að hafa orðið fyrir alvarlegri líkamsárás í síðustu viku. Maðurinn hafði, samkvæmt heimildum DV, legið á gjörgæslu í nokkra daga eftir árásina en mun hafa látist af sárum sínum eftir hádegi á föstudaginn. Meira
Maðurinn sem fannst látinn í Hafnarfjarðarhöfn á sjöunda tímanum í kvöld reyndist vera Eric John Burton, Englendingurinn sem björgunarsveitir höfðu leitað að frá því klukkan 5 í fyrrinótt. Meira
Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa valdið dauða annars manns í Reykjanesbæ í nótt. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins bárust lögreglu ábendingar eftir að vitni sáu blóðugan mann á gangi. Meira
Maðurinn sem fannst látinn fyrir utan íbúðarhús við Eyjabyggð í Keflavík á laugardagsmorgun hét Haukur Sigurðsson, fæddur 24. október 1957. Haukur var búsettur í Sandgerði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn.
Ferðaþjónustuaðilar á Suðurlandi hafa áhyggjur af sumrinu. Lítið hefur verið um bæði innlenda og erlenda ferðamenn á svæðinu frá því gos hófst í Eyjafjallajökli og mun minna verið bókað en á sama tíma undanfarin ár. Meira
Maður í sviffallhlíf skall á fjórða tímanum utan í hamravegg vestan í Ingólfsfjalli á móts við Hvammsveg í Nýbýlahverfi. Hann lenti ofarlega í fjallinu og björgunarsveitarmenn fóru á staðinn með sértækan búnað. Maðurinn var ekki með lífsmarki þegar björgunarmenn komu að honum. Meira
Íbúar í miðborginni eru að missa þolinmæðina vegna ófremdarástands sem myndast þar um helgar. „Þetta vandræðaástand hefur bara verið framlengt, ofbeldisglæpir verða harðari þegar líður á nóttina, fyrir utan auðvitað ónæðið fyrir íbúa og lækkun á fasteignaverði. Meira
Sjósunds- og Sjóbaðsfélag Reykjavíkur (SJÓR) og Sundsamband Íslands (SSÍ) harma banaslysið sem varð við Stykkishólm aðfaranótt síðastliðins hvítasunnudags og votta aðstandendum hins látna innilega samúð. Meira
Erlendir fjölmiðlar hafa verið duglegir að fjalla um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskuskýsins á flug og ferðaáætlanir víða um heim. Á vef New York Times er fjallað um eldgosið út frá öðru sjónarhorni, en þar má sjá stórbrotið myndskeið eftir Sean Stiegemeier. Meira
Þórhallur Halldórsson mjólkuriðnaðarverkfræðingur andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi 23. maí síðastliðinn, 87 ára að aldri. Meira