Fréttaannáll 2010: mest lesnu fréttir febrúar

[ ársins  |  janúar  |  febrúar  |  mars  |  apríl  |  maí  |  júní  |  júlí  |  ágúst  |  september  |  október  |  nóvember  |  desember ]
1
Erlent | AFP | 20.2 | 19:49

Hengdi sig í fangaklefa

Frakki sem var ákærður fyrir tvöfalt morð fannst í dag látinn í fangaklefa sínum. Svo virðist sem hann hafi hengt sig með því að nota lakið á beddanum sínum. Meira

2
Veröld/Fólk | mbl | 3.2 | 8:31

Skoðaði nektarmyndir í beinni útsendingu

Mynd af YouTube.

Ástralskur bankastarfsmaður er í vondum málum eftir að til hans sást í beinni sjónvarpsútsendingu skoða myndir af hálfnakinni fyrirsætu í tölvunni sinni. Meira

3
Veröld/Fólk | mbl | 9.2 | 7:23

Vann tvo milljarða í lottói en er kominn aftur á bætur

Machael Carroll kann ekki að fara með peninga.

Átta árum eftir Machael Carroll fyrrum sorphirðumaður vann tvo milljarða í lottói er hann kominn á sama stað og hann var á áður en hann vann í lottóinu; á atvinnuleysisbætur. Peningunum sóaði Carroll m.a. í fíkniefni og gleðikonur. Meira

4
Íþróttir | mbl | 27.2 | 18:45

Gunnar Berg: Sendum samúðarkveðjur til Arnars Péturssonar

Gunnar Berg fagnar bikarmeistaratitlinum ásamt félögum sínum.

Gunnar Berg Viktorsson var í essinu sínu í fagnaðarlátunum í Laugardalshöllinni í dag eftir að Haukar tóku við bikarnum. Haukar sigruðu Val 23:15 í úrslitaleik Eimskipsbikarkeppninnar í handknattleik og Gunnar var í lykihlutverki í vörninni. Gunnar bað fyrir samúðarkveðjur til Arnars Péturssonar. Meira

5
Veröld/Fólk | mbl | 17.2 | 18:25

Mynd á bloggsíðu vekur umtal

Mynd af bloggi Egils.

Mynd, sem Egill Helgason birtir á bloggsíðu sinni úr samkvæmi, sem er sagt hafa verið haldið í skíðaskála Jóns Ásgeirs Jóhannessonar árið 2006 eða 2007, hefur vakið mikið umtal á vefnum. Meira

6
Innlent | mbl | 21.2 | 12:06

Ástand mannsins er alvarlegt

Húsið er mikið skemmt eftir brunann og allt innbú gjörónýtt.

Maðurinn sem fluttur var með þyrlu frá Stykkishólmi eftir að eldur kom upp í húsi hans er alvarlega veikur, að sögn læknis á gjörgæsludeild. Meira

7
Innlent | mbl | 10.2 | 17:14

„Þetta var ekkert smá sárt“

Kristín með litlu dótturina Sögu Oleu.

Íslensk kona, Kristín Lund-Hammeren, varð fyrir þeirri hræðilegu reynslu að gangast ódeyfð undir keisaraskurð. Það gerðist á Østfold sjúkrahúsinu í Fredrikstad í Noregi 21. janúar s.l. Kristín segist ekki getað óskað versta óvini sínum að ganga í gegnum aðrar eins kvalir. Meira

8
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 24.2 | 5:30

Margréti Erlu hent út af Fésbók

 Margrét Erla Maack

Margrét Erla Maack útvarpskona á Rás 2 bættist fyrir helgi í hóp valinkunnra Íslendinga (Ragnheiður E. Clausen, Ásdís Rán, Árni Helgason) sem hefur verið hent út af Fésbókinni, einhverra hluta vegna. Meira

9
Veröld/Fólk | mbl | 22.2 | 17:49

Lentu á rangri Kanaríeyju

 .

Farþegar, sem ætluðu að fara með írska lággjaldaflugfélaginu Ryanair til Lanzarote, einnar af Kanaríeyjunum, voru hins vegar skildir eftir á nágrannaeyjunni Fuerteventura og þurftu sjálfir að koma sér á áfangastað. Meira

10
Viðskipti | mbl | 11.2 | 13:21

A. Karlsson gjaldþrota

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði A.Karlsson gjaldþrota.

Fyrirtækið A. Karlsson hefur verið lýst gjaldþrota. Þorsteinn Einarsson skiptastjóri segir að reynt verði að selja fyrirtækið sem fyrst, í einu lagi eða í bútum. Verslun fyrirtækisins er opin í dag. 36 stöðugildi eru hjá fyrirtækinu. Meira

11
Innlent | mbl | 7.2 | 13:26

„Ég hrökk við í bælinu“

Enn er verið að sprengja í Bolungarvíkurgöngum.

„Ég hrökk við í bælinu, þetta voru djöfuls læti,“ segir Finnbogi Hermannsson, fréttamaður í Hnífsdal, þegar hann lýsir sprengingum sem hristu Hnífsdal í gærkvöldi. Ekki er víst hvað margir urðu varir við þetta því flestir íbúarnir voru að skemmta sér á þorrablóti í félagsheimilinu. Meira

12
Veröld/Fólk | mbl | 14.2 | 15:43

Svaf hjá sinni fyrrverandi

Ronnie Wood úr Rolling Stones.

Hinn útlifaði gítarleikari Rolling Stones, Ronnie Wood, er sagður hafa eytt nóttinni með fyrrverandi kærustu sinni í vikunni, rússnesku fegurðardrottningunni Katiu Ivanova. Þau skildu í desember sl. Meira

13
Íþróttir | Morgunblaðið | 3.2 | 8:07

Átti íslenska liðið boltann?

Alexander Petersson

Guðjón L. Sigurðsson, formaður dómaranefndar Handknattleikssambands Íslands, segir margumtalaðan varnarleik Alexanders Peterssons undir lok undanúrslitaleiks Íslands og Póllands á sunnudaginn í Vínarborg ekki eingöngu vera dæmi um frábæran varnarleik heldur einnig skýrt dæmi um mjög góða dómgæslu. Meira

14
Erlent | mbl | 12.2 | 10:33

Lokaði 13 ára stúlku inni og nauðgaði henni

Maður frá New York-ríki hefur verið handtekinn grunaður um að hafa nauðgað 13 ára stúlku. Maðurinn er talinn hafa lokað stúlkuna inni á heimili sínu í sex mánuði. Meira

15
Erlent | AFP | 5.2 | 7:11

16 ára stúlka grafin lifandi

Ættingjar tyrkneskrar sextán ára gamallar stúlku grófu hana lifandi þar sem hún þótti hafa kallað smán yfir fjölskylduna með því að eiga vingott við pilta. Anatolia fréttastofan sagði frá þessu í gær. Meira

16
Erlent | mbl | 25.2 | 21:09

Faiza fannst myrt inni í skógi

Faiza Ashraf, 26 ára norsk kona af pakistönskum ættum, var...

Faiza Ashraf, 26 ára gömul norsk kona af pakistönskum ættum, fannst myrt á ferðamannastað á Solli í Asker um kl. eitt síðastliðna nótt. Hún fannst drjúgan spöl inni í skógi um 100 metra frá fjölfarinni skíðagöngubraut. Meira

17
Íþróttir | Morgunblaðið | 2.2 | 12:35

Guðmundur: „Logi á hrós skilið“

Guðmundur Guðmundsson

„Við notuðum Loga Geirsson ekki mikið að þessu sinni. Það þróaðist einhvern veginn þannig þegar á mótið leið, en var ekkert sem beinlínis var meðvitað fyrirfram,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson í samtali við Morgunblaðið í gær og er birt á miðopnu íþróttablaðsins í dag. Þar gerir Guðmundur Þórður mótið upp. Hann vill lítið gefa út um ástæður þess að Logi fór með og var síðan aðeins látinn leika í rúmlega þrjár og hálfa mínútu þegar á hólminn var komið. Meira

18
Innlent | mbl | 24.2 | 11:00

„Ég var rekinn“

Jón Kaldal, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins.

„Ég var rekinn,“ sagði Jón Kaldal, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins aðspurður um hvort starfslokin á blaðinu hafi verið að hans frumkvæði. Honum var tilkynnt uppsögn seinnipartinn í gær og kvaddi hann vinnustaðinn í gærkvöldi en á eftir að kveðja starfsfólkið. Meira

19
Innlent | mbl | 15.2 | 10:59

„Við sáum þarna þúst“

Guðmundur Arnar Ástvaldsson og Þór Kjartansson ganga frá...

„Maður er þakklátur, að finna fólkið, svo það þyrfti ekki að hafast þarna við um nóttina,“ segir Guðmundur Arnar Ástvaldsson, félagi í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík. Hann og þrír félagar hans úr beltaflokki sveitarinnar fundu konu og ellefu ára son hennar á Langjökli í nótt. Meira

20
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 9.2 | 5:30

Skilin við barnsföðurinn

Jamie Lynn Spears og Casey Aldridge.

Það vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum þegar Jamie Lynn Spears, litla systir Britney Spears, varð ólétt aðeins sextán ára gömul. Hún fæddi dóttur sína Maddie árið 2007 og hefur átt í stormasömu sambandi við barnsföður sinn, Casey Aldridge, síðan. Meira

21
Innlent | mbl | 18.2 | 18:16

Krafði dótturson sinn um 9 milljónir

Hæstiréttur vísaði í dag frá dómi kröfu konu á áttræðisaldri, sem krafði dótturson sinn um tæplega 9 milljónir króna. Konan afsalaði dóttursyninum lóð og sumarhúsi árið 1993 en sagði það hafa verið gert til að koma eigninni undan aðför skuldheimtumanna. Meira

22
Erlent | mbl | 24.2 | 21:44

Háhyrningur í Orlando drap konuMyndskeið

Fréttamynd

Háhyrningur drap konu á sædýrasafninu SeaWorld Orlando á Florida í dag. Atburðurinn átti sér á sýningu þar sem fjöldi áhorfenda fylgdist með. Konan sem lést var þjálfari háhyrningsins, en dýrið var fangað árið 1983 við strendur Íslands. Meira

23
Innlent | Morgunblaðið | 24.2 | 5:30

Uppseldri ferð aflýst

Golfleikur á Tenerife.

Hjónum sem pantað höfðu ferð til Tenerife í lok apríl hjá Úrval-Útsýn var nýlega tjáð að ferðin félli niður vegna ónógrar þátttöku. En þegar þau könnuðu málið í bókunarvél félagins stóð eftir sem áður að ferðin væri uppseld. Meira

24
Veröld/Fólk | mbl | 7.2 | 18:00

100 óboðnir gestir mættu vegna Facebook

Facebook nýtur gríðarlegra vinsælda hjá netverjum, en þar...

Partý sem unglingspiltur hélt í Bretlandi í fjarveru foreldra sinna fór algjörlega úr böndunum eftir að hann auglýsti það á Facebook með opinni síðu. Þegar foreldrar hans sneru aftur heim eftir helgarfrí var búið að leggja heimili þeirra í ríkramannahverfinu Kingston-upon-Thames í rúst. Meira

25
Innlent | mbl | 15.2 | 7:09

Gerðu skjól úr sleðanum

Mynd 522550

Fólkið sem bjargað var af Langjökli í nótt hafði stöðvað vélsleðann þegar það varð viðskila við hópinn, velti honum á hliðina og notaði vélarhlífina til að búa til skjól og beið eftir hjálp. Það voru flutt á sjúkrahús til aðhlynningar, við ótrúlega góða heilsu. Meira