Mike Babick, 69 ára Bandaríkjamaður, hefur lagt mikið á sig til að skreyta hús sitt fyrir jólin og skreytingarnar eru orðnar svo vinsælar að mörgum nágrönnum hans þykir nóg um og hafa kvartað til yfirvalda. Meira
Nýsjálenskt veftímarit hefur tekið upp hanskann fyrir herferð sem hvetur ungar konur til að taka myndir af sér berum að ofan og senda vefsíðunni sem síðan birtir þær í því skyni að vekja athygli fólks á brjóstakrabbameini. Meira
Bandaríski leikarinn Michael Douglas var í hjólastól er hann fór í skemmtigarð nýverið með fjölskyldu sinni. Þykir þetta sýna hversu erfið barátta hans er við krabbameinið. Meira
Hinn 39 ára gamli Alexander Ofner var handtekinn um helgina fyrir að stunda sjálfsfróun á almannafæri. Meira
Handboltakappinn Logi Geirsson kom heim úr atvinnumennskunni í haust og leikur nú með liði FH í heimabæ sínum Hafnarfirði. Meira
Neil Klopfenstein sem vísað er til í leyniskjölum WikiLeaks var skiptinemi á Íslandi á áttunda áratugnum. Í leyniskjölunum er vísað til til orða Klopfenstein um að menn undrist að Steingrímur J. Sigfússon skuli hafa verið „að sanna sig sem alvarlegur og ábyrgur fjármálaráðherra. Meira
„Það sem við viljum sjá gerast er að Gunnar sjái að sér og játi brot sín, hann biðji konurnar fyrirgefningar, segi af sér og leiti sér hjálpar,“ segir Ásta Knútsdóttir, talskona kvenna sem hafa sakað Gunnar Þorsteinsson í Krossinum um kynferðislega áreitni. Meira
Ásgeir Hjartarson, hárgreiðslumeistari, segir vinnuna sína og fatastíl oft hafa valdið misskilningi á kynhneigð sinni eins og sannaðist síðustu helgi með óperusöngkonuna Summer Watson. Meira
Dómstóll í bænum Colmar í austur Frakklandi hefur dæmt mann í átta mánaða skiliorðsbundið fangelsi fyrir að hafa skilið fjögurra ára dóttur sína eftir fyrir utan næturklúbb á meðan hann skemmti sér innandyra. Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi í dag níu húsleitir, sjö á Akureyri og í nágrenni og tvær á höfuðborgarsvæðinu vegna í þágu rannsóknar á stórfelldu ólöglegu niðurhali. Tíu einstaklingar á aldrinum 15-20 ára eru grunaðir um aðild að málinu, öllum hefur verið sleppt. Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk á þriðja tímanum í nótt tilkynningu um að sést hafði til manns sem væri með byssu á skemmtistað í miðborginni, þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn á bak og burt. Fannst hann á öðrum skemmtistað vopnaður riffli og með nokkurt magn skotfæri í fórum sínum Meira
„Fólk hélt í alvörunni að ég hefði verið að leika í fyrstu íslensku klámmyndinni,“ segir María Birta Bjarnadóttir sem lék í kvikmyndinni Óróa og kom þar fram í umtöluðu ástaratriði. Meira
Refir hafa komið inn í Reykjavík í nokkur ár. Þannig fóru tófur og tófuslóðir að sjást við og á Reykjavíkurflugvelli fyrir fimm til sex árum. Meira
„Ég held að margir sem hafi yfirskuldsettar eignir meti stöðuna þannig að það sé best að fara í gjaldþrot“. Meira
„Efnahagshrun einkennist af stórfelldum eignatilfæringum og það er að okkar mati hlutverk ríkisins að sjá til þess að byrðnum sé deilt jafnt,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, í harðri gagnrýni á aðgerðir til handa skuldurum. Fjármálafyrirtæki fái íbúðir á silfurfati. Meira
Maður sem tekinn var fyrir of hraðan akstur í London fyrir tveimur árum hafði ekki búið lengi á Nýja Sjálandi en sami lögreglumaðurinn stöðvaði hann fyrir hraðaakstur. Meira
Að sögn Ólafs Sigurvinssonar, stofnanda Datacell, er von á mönnum frá Visa til landsins á morgun til að hefja samningarviðræður. „Mér heyrðist á lögfræðingunum að það væri einhver sáttartónn í mönnum og að þeir væru frekar til í að borga okkur háar skaðabætur en að pirra Bandaríkjastjórn.“ Meira
Um 60 þúsund heimila munu njóta góðs af þeim aðgerðum, sem samkomulag hefur orðið um á milli stjórnvalda, lífeyrissjóða og fjármálastofnana. Áætlað er að aðgerðirnar kosti um 100 milljarða króna, þar af bera bankar og fjármálastofnanir um 2/3 og lífeyrissjóðir og Íbúðalánasjóður um þriðjung. Meira