Fréttaannáll 2010: mest lesnu fréttir apríl

[ ársins  |  janúar  |  febrúar  |  mars  |  apríl  |  maí  |  júní  |  júlí  |  ágúst  |  september  |  október  |  nóvember  |  desember ]
1
Innlent | mbl | 25.4 | 22:22

Létust í umferðarslysi

Tvær af stúlkunum þremur sem sem slösuðust í umferðarslysi við Mánatorg í Reykjanesbæ í gærmorgun eru látnar samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild. Sú þriðja er enn á á gjörgæsludeild Landspítalans. Meira

2
Innlent | mbl | 8.4 | 9:15

Top Gear ók upp á heitt hraun

Top Gear menn óku upp á nýrunnið hraunið á bíl með...

Leiðangursmenn Top Gear óku jeppa, sérstaklega breyttum, upp á nýrunnið hraun á Fimmvörðuhálsi. Þótt dekkin væru kæld með vatni kviknaði samt í einu þeirra við hraunaksturinn. Leiðangursmenn komu heilu og höldnu af jöklinum í nótt eftir ævintýraferð. Meira

3
Innlent | mbl | 18.4 | 7:11

Sjómaður féll útbyrðis og lést

Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug að skipinu.

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ var kölluð út kl. 22:42 í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um sjómann sem féll útbyrðis af togara sem var að veiðum 67 sjómílur SV af Reykjanesi. Skipverjar voru að reyna að ná manninum um borð en það gekk illa. Meira

4
Erlent | mbl | 1.4 | 14:13

Horfin stúlka fannst látin á heimili sínu

Auglýsingaskilti í Mexíkó borg þar sem auglýst var eftir...

Fjögurra ára stúlka sem hvarf sporlaust í síðasta mánuði og auglýst hefur verið mikið eftir í Mexíkó borg fannst látin í herberginu sínu. Haft er eftir Alberto Babaz, ríkissaksóknara, að stúlkan, Paulette Gebara Farah, hafi kafnað. Meira

5
Innlent | mbl | 7.4 | 18:02

Urðu úti að Fjallabaki

Mynd 410011

Fólkið sem varð úti að Fjallabaki í gær hét Friðgeir Fjalar Víðisson og Kristín R. Steingrímsdóttir. Friðgeir var 55 ára gamall þegar hann lést, en Kristín 43 ára. Þau voru bæði búsett í Reykjavík. Meira

6
Innlent | mbl | 16.4 | 4:41

Ófrýnileg ásýnd Eyjafjallajökuls

Gígurinn í Eyjafjallajökli.. Myndin var tekin úr TF Sif í gær.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar náðu síðdegis í gær ratsjármyndum af gígunum í Eyjafjallajökli. Megingosopin eru þrjú og er hvert þeirra 200-500 metrar í þvermál. Meira

7
Innlent | mbl | 22.4 | 8:53

Mun stærra íslenskt eldfjall „við það að springa“

Eldstöðin Katla

Fréttir um varúðarorð forseta Íslands um yfirvofandi gos í Kötlu var enn víða að finna á forsíðum erlendra vefmiðla í gær. Meira

8
Innlent | mbl | 12.4 | 19:16

Með dótageymslu í Skútuvogi

Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson koma af fundi...

Kaupþing var með geymslu í Skútuvogi í Reykjavík þar sem voru bílar, veiðigræjur, tjaldvagnar og fleira sem stjórnendur bankans höfðu aðgang að. Meira

9
Veröld/Fólk | mbl | 9.4 | 21:10

Afþakkaði gjafabréf í Útsvari

Vilhjálmur Bjarnason

Lið Garðbæinga bar sigur úr býtum í Útsvari í Sjónvarpinu í kvöld, spurningakeppni sveitarfélaganna. Garðbæingar lögðu Reykvíkinga með 93 stigum gegn 41 í úrslitaþættinum. Vilhjálmur Bjarnason lektor afþakkaði gjafabréf frá Iceland Express við verðlaunaafhendinguna. Meira

10
Innlent | mbl | 17.4 | 7:40

„Þetta er viðbjóður“

Gosmökkurinn yfir Þorvaldseyri í gærkvöldi.

„Þetta er viðbjóður. Það er hreint ótrúlegt að upplifa þetta. Þetta er miklu verra en ég reiknaði með,“ sagði Páll Eggert Ólafsson, bóndi á Þorvaldseyri, sem í gær horfði á öskumökkinn gleypa bæinn sinn. Meira

11
Erlent | mbl | 19.4 | 12:58

Nauðlending í Norður-Noregi

17 farþegar voru um borð í vélinni sem varð að nauðlenda í Bodø

Farþegaflugvél frá norska flugfélaginu Wideröe varð að nauðlenda nú í morgun eftir að annar hreyfillinn gaf sig. Verið er að kanna hvort aska frá Eyjafjallajökli sé ástæða vélabilunarinnar. Meira

12
Innlent | mbl | 14.4 | 11:27

Mjög öflugt gos

Garðarnir í Fljótsdal þola ekki stórt hlaup.

Gosið í Eyjafjallajökli er mun öflugra en það sem varð á Fimmvörðuhálsi. Skv. upplýsingum frá samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð er það talið vera um 10 til 20 sinnum öflugra. Sprungan norður-suður er nú um 2 km á lengd. Meira

13
Innlent | Morgunblaðið | 7.4 | 5:30

Tvö fundust látin

Mynd 527162

Kona og karlmaður sem leitað var að frá því aðfaranótt þriðjudags fundust látin síðdegis og seint í gærkvöldi við Bláfjallakvísl. Fólkið var á ferð við þriðja mann, konu sem fannst á gangi um miðjan dag í gær. Líðan hennar var í gærkvöldi eftir atvikum góð. Meira

14
Innlent | mbl | 6.4 | 18:41

Önnur konan fannst látin

Þyrla Landhelgisgæslunnar kemur með konurnar á...

Kona, sem fannst síðdegis við Bláfjallakvísl, var látin þegar að henni var komið. Hún var fædd 1967. Fyrr í dag fannst önnur kona á gangi á svæðinu, köld og hrakin, en henni hefur nú verið komið undir læknishendur. Enn er leitað að karlmanni, sem var með konunum í för. Meira

15
Innlent | Morgunblaðið | 15.4 | 3:40

Ég hef aldrei séð svona áður Myndskeið

Fréttamynd

Seinna hlaupið sem kom í Markarfljót í gærkvöldi var gjörólíkt því fyrra. Hlaupvatnið í fyrra hlaupinu var um 3,5-4 gráða heitt og í því var nánast enginn krapi. Meira

16
Innlent | mbl | 14.4 | 12:22

Skarð komið í varnargarðinn

Vatn flæðir um allt og m.a. yfir varnargarð austan við...

Hlaupið er komið að Markarfljótsbrú og hefur rofið skarð í varnargarðinn austan við ána. Vegagerðarmenn náðu að rjúfa skarð í veginn og þar spýtist jökulvatn af miklum krafti. Vegagerðarmenn ætla sér að rjúfa þrjú skörð í veginn. Meira

17
Innlent | Morgunblaðið | 24.4 | 7:12

Laus úr öndunarvél

Matthildur Haraldsdóttir.

Matthildur Haraldsdóttir er laus úr öndunarvél eftir flókna og viðamikla skurðaðgerð í München í Þýskalandi í liðinni viku. Þetta var önnur aðgerðin af þremur sem hún þarf að fara í vegna sjaldgæfs æða- og hjartagalla en stúlkan er aðeins um fjögurra og hálfs mánaðar gömul. Meira

18
Innlent | mbl | 27.4 | 6:22

Fannst sofandi við höfnina

Akranes.

Lögreglan á Akranesi fékk snemma á sunnudagsmorgun tilkynningu um mann sofandi utandyra niðri við höfn. Maðurinn var kominn á fætur þegar að var komið en orðið ansi kalt. Meira

19
Innlent | Morgunblaðið | 29.4 | 5:30

Jörðin seld án auglýsingar

Sigurgeir Runólfsson, bóndi á Skáldabúðum og Þórey...

„Ég hef reynt að berjast á móti þessu, en eins manns stríð endar aldrei vel,“ segir Sigurgeir Runólfsson, bóndi á Skáldabúðum í Árnessýslu, sem neyðst hefur til að hætta búskap. Meira

20
Innlent | mbl | 21.4 | 10:56

Nýtt eldgosaskeið að hefjast?

Eldgosið í Fimmvörðuhálsi var undanfari eldgossins í Eyjafjallajökli.

Íslenskir jarðvísindamenn telja að nú geti verið að hefjast ný hrina jarðelda hér á landi sem geti varað í um 60 ár og náð hámarki milli áranna 2030 og 2040. Þetta kemur fram í nýlegri grein í vísindatímaritinu New Scientist. Meira

21
Innlent | mbl | 14.4 | 19:04

Hraun vellur úr sprunguMyndskeið

Fréttamynd

Hér má sjá myndir úr hitamyndavél sem er í TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, en hér sést glöggt hvernig hraunið vellur upp úr einum af fimm gígum sem eru á jöklinum. Búist er við nýju flóði á hverri stundu. Meira

22
Innlent | mbl | 20.4 | 10:25

Eins og sparkað í flugvélinaMyndskeið

Gosmökkurinn séður frá Múlakoti í Fljótshlíð í morgun.

„Hljóðið var eins og sparkað væri í flugvélina en höggið var í sjálfu sér ekki mikið,“ sagði Eyjólfur Guðmundsson hagfræðingur. Hann og John Turbefield urðu vitni að því hvernig höggbylgjur frá öflugum sprengingum í Eyjafjallajökli þeyttust upp gosmökkinn í gærkvöldi. Meira

23
Veröld/Fólk | mbl | 29.4 | 19:33

Hvorki borðað né drukkið í 70 árMyndskeið

Fréttamynd

Indverskur karlmaður á níræðisaldri er til rannsóknar lækna en sá segist hvorki hafa snætt matarbita né drukkið vökvadropa í yfir sjötíu ár. Maðurinn sem er 82 ára og heilsuhraustur segist fá næringu sína frá Ambu, einni af gyðjum hindúa. Hann hefur verið undir eftirliti í um tvær vikur. Meira

24
Erlent | AFP | 10.4 | 15:53

Flugmenn hunsuðu fyrirmæli

Kona leggur blóm að innganginum við sendiráð Póllands í...

Rússnesk stjórnvöld hafa fyrirskipað ítarlega rannsókn á flugslysinu í morgun, þar sem forseti Póllands var á meðal þeirra sem létust. Yfirmaður rússneska flughersins segir að flugmaður vélarinnar hafi ítrekað hunsað fyrirskipanir frá rússneskum flugumferðarstjórum áður en flugvélin brotlenti. Meira

25
Innlent | mbl | 14.4 | 11:27

„Stórflóð við Þorvaldseyri“

Mynd 527865

„Það er stórflóð í gangi við Þorvaldseyri,“ segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri. Hann segir að mannvirki séu í hættu en ekkert tjón hefur enn orðið. Meira