Fréttaannáll 2010: mest lesnu fréttir mars

[ ársins  |  janúar  |  febrúar  |  mars  |  apríl  |  maí  |  júní  |  júlí  |  ágúst  |  september  |  október  |  nóvember  |  desember ]
1
Innlent | mbl | 21.3 | 7:31

Gosið færist í aukana

Gosið er á sprungu í Fimmvörðuhálsi.

„Þetta er ekki stórgos, en það hefur heldur verið að færast í aukna núna á fyrstu sex klukkustundunum," segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. Hann kom um klukkan sex úr flugi jarðvísindamanna yfir gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi með flugvél Gæslunnar. Meira

2
Innlent | mbl | 22.3 | 14:49

Nýtt fjall á Fimmvörðuhálsi

Nýja fjallið blasir við og mátti sjá hraunmolana velta...

Eldgosið á Fimmvörðuhálsi hefur hlaðið upp nýju fjalli. Þorsteinn Jónsson frá Lambey í Fljótshlíð fór ásamt fleirum að Tröllagjá þaðan sem meðfylgjandi myndir náðust. Þá var leiðin að Tröllagjá opin en henni hefur nú verið lokað af öryggisástæðum. Meira

3
Veröld/Fólk | BANG ShowBiz | 17.3 | 18:11

Hélt framhjá Söndru Bullock

Jesse James og Sandra Bullock á Óskarsverðlaunahátíðinni.

Sandra Bullock hefur aflýst fyrirhuguðu flugi til Bretlands í næstu viku og öllum kynningum tengdum myndinni The Blind Side eftir að upp komst að maður hennar Jesse James hélt framhjá henni með húðflúrsfyrirsætu. Meira

4
Veröld/Fólk | mbl | 12.3 | 13:49

Páll Óskar varð fangi klámsins

Páll Óskar er í viðtali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Páll Óskar Hjálmtýsson fagnar fertugsafmæli sínu um helgina. Hann kveðst lifa í sátt við sjálfan sig í dag, en fyrir tíu árum var hann óhamingjusamur og ráðvilltur eftir áföll í einkalífi og leitaði í hommaklám. Meira

5
Innlent | mbl | 7.3 | 10:10

Fögnuður Íslendinga á BBC

Frá kosningunni í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.

Fréttamaður breska ríkisútvarpsins, BBC, fór á stúfana seint í gærkvöldi til að fylgast með fögnuði Íslendinga eftir afgerandi niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær. Meira

6
Innlent | mbl | 21.3 | 1:02

Eldurinn sést úr Fljótshlíð

Gosbjarminn sést vel frá Kirkjulækjarkoti. Myndin var tekin...

„Ég sé eldrönd og mér sýnist hún vera austanmegin og að norðanverðu í jöklinum. Mér sýnist að mökkurinn komi hingað til okkar. Vindurinn blæs hingað. Fnykurinn er sterkur,“ sagði Þröstur Sigfússon í Kirkjulækjarkoti í Fljótslhlíð. Hann stóð úti á hlaði og horfði á eldgosið í Eyjafjallajökli. Meira

7
Erlent | mbl | 8.3 | 14:23

Barnið fannst grafið í skafl

Örvæntingarfullri leit að þriggja mánaða dreng, sem var rænt úr barnavagni í Finnlandi, lauk eftir þrjá tíma þegar barnið fannst grafið í skafl. Lögreglumenn heyrðu drenginn gráta og grófu hann upp úr snjóskaflinum. Meira

8
Erlent | mbl | 9.3 | 16:56

Ísbjörn á rölti við blokkirnar

Ísbjörninn, sem skotinn var í Skagafirði hætti sér ekki...

Ísbjörn var felldur í morgun í bænum Paamiut á Grænlandi. Fullvaxinn karlbjörn sást á vappi innan um fjölbýlishús í bænum, að sögn grænlenska útvarpsins KNR. Haft var samband við veiðimenn í bænum. Siverth Knudsen felldi björninn og þykir það happafengur þar í landi. Meira

9
Innlent | mbl | 24.3 | 11:20

„Þetta er rosalegt“

Vísindamenn á gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi í dag.

„Þetta er rosalegt, ofboðslega flott - alveg klikkað,“ sagði Ragnar Axelsson ljósmyndari sem nú er staddur við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi. Hann átti varla orð til að lýsa áhrifunum. Ragnar er þarna ásamt jarðvísindamönnum sem eru að rannsaka eldgosið. Meira

10
Innlent | mbl | 25.3 | 12:43

„Líkt og kvikni í ísnum“Myndskeið

Fréttamynd

Gosið á Fimmvörðuhálsi er hvergi nær í rénun þó það hafi verið nokkuð stöðugt undanfarin sólarhring. Hraunfossinn er tignarlegur og gríðarlegir gufubólstrar myndast þegar hraunið kemst í snertingu við ís í botni Hrunaárgils; „hreinlega líkt og kvikni í ísnum,“ að sögn blaðamanns Morgunblaðsins. Meira

11
Íþróttir | Morgunblaðið | 31.3 | 5:30

Ótrúleg uppákoma í Króatíu

Klara Bjartmarz, starfsmaður Knattspyrnusambands Íslands,...

Ótrúleg uppákoma átti sér stað á Town Stadium-leikvanginum í bænum Vrbovec í Króatíu í gær á síðustu æfingu íslenska kvennalandsliðsins fyrir leik liðsins gegn Króatíu í undankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta. Meira

12
Innlent | mbl | 28.3 | 15:09

Fór lamaður að eldgosinu

Jón Gunnar Benjamínsson, sem er lamaður fyrir neðan mitti,...

„Ég hugsa að ég hafi verið eini lamaði maðurinn á svæðinu,“ sagði Jón Gunnar Benjamínsson ferðamálafræðingur sem fór að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi á fjórhjóli í gær. Hann hefur ekki látið lömun í fótum aftra sér frá ferðum um óbyggðir Íslands. Meira

13
Innlent | mbl | 5.3 | 13:10

Fannst látinn

Mynd 410011

Karlmaður sem var leitað í nótt og í morgun fannst látinn á ellefta tímanum í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi bendir allt til þess að hann hafi orðið úti en um eitt hundrað björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni. Meira

14
Erlent | AFP | 9.3 | 8:33

„Engill dauðans" fannst látinn í fangaklefa

Finnskur hjúkrunarfræðingur, sem kallaður hefur verið „engill dauðans" fannst látinn í fangaklefa sínum í Turku í Finnlandi í morgun. Um er að ræða 28 ára gamla konu, sem dæmd var í ævilangt fangelsi fyrir að myrða sjúkling með insúlíni. Meira

15
Tímaritið Monitor | mbl | 15.3 | 13:01

Baðfataatriðið breytti ferlinum

Kara DioGuardi fletti sig klæðum í lokaþætti American Idol í fyrra.

Kara DioGuardi, einn af dómurum American Idol, segir að ákvörðun hennar um að koma fram á baðfötum í úrslitaþættinum í fyrra, hafi breytt ferli hennar. DioGuardi steig þá á svið og tók lagið með stúlku sem hafði mætt á baðfötunum í prufu fyrir þáttinn og vakti uppátækið mikla athygli. Meira

16
Innlent | mbl | 21.3 | 14:01

Þurfum að fylgjast með Kötlu

Gosið er á sprungu á Fimmvörðuhálsi á milli...

Öll gos í Eyjafjallajökli hafa leitt til goss í Kötlu. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir engan vafa leika á að flokka megi gosið sem hófst í nótt undir gos í Eyjafjallajökli og því sé full ástæða til að fylgjast vel með jarðhræringum í Kötlu á næstunni. Meira

17
Innlent | mbl | 21.3 | 0:53

Öskufall byrjað í byggð

Markarfljót. Á myndinni sjást Eyjafjallajökull og Stóri-Dímon.

Almannavarnir ríkislögreglustjóra hafa staðfest að eldgos í Eyjafjallajökli en öskufall er í Fljótshlíð og bjarmi sést frá mörgum stöðum í byggð. Búið að virkja samhæfingarstöð Almannavarna í Skógarhlíð og verið er að rúma byggðina í Fljótshlíð og undir Eyjafjöllum sem talin er vera á hugsanlegu hættusvæði. Meira

18
Innlent | Morgunblaðið | 19.3 | 5:30

Andlát: Páll Ólafsson

Páll Ólafsson.

Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri og bóndi í Brautarholti á Kjalarnesi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 16. mars, 80 ára að aldri. Meira

19
Innlent | mbl | 21.3 | 4:32

Gossprungan um 1 km að lengd

Mynd af gosstöðvunum í Eyjafjallajökli tekin úr...

Samkvæmt upplýsingum frá jarðvísindamönnum um borð í TF-LÍF er gosið norðarlega í Fimmvörðuhálsi, á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Gossprungan virðist vera um 1 km að lengd og liggur í norðaustur – suðvestur. Lágir gosstrókar koma úr sprungunni og lítil aska sjáanleg. Meira

20
Innlent | mbl | 26.3 | 13:22

Umheimurinn hræðist Kötlugos

Gosið í Fimmvörðuhálsi í öllu sínu veldi.

Fréttamiðlar erlendis hafa margir greint frá mögulegum afleiðingum Kötlugoss. Nú síðast hefur AP fréttastofan eftir bandarískum vísindamanni að gos í Kötlu geti leitt til kólnunar loftslags á heimsvísu. Sagan sýni að Kötlugos fylgi alltaf gosi í Eyjafjallajökli, spurningin sé aðeins hvenær. Meira

21
Innlent | Morgunblaðið | 1.3 | 5:30

Andlát: Þorsteinn Geirsson

Þorsteinn Geirsson.

Látinn er í Reykjavík Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Meira

22
Erlent | mbl | 8.3 | 7:24

Tvær norskar telpur drukknuðu

Tvær níu ára gamlar norskar stúlkur drukknuðu þegar alda hreif þær með sér þar sem þær voru að leika sér í fjöru við Kristiansund á vesturströnd Noregs í gærkvöldi. Meira

23
Innlent | Morgunblaðið | 4.3 | 5:30

Búið að loka Friðriki V.

Friðrik V. í Gilinu á Akureyri.

Friðrik V., sá kunni veitingastaður í Gilinu á Akureyri, er hættur starfsemi. Stofnendur staðarins og meirihlutaeigendur, Friðrik Valur Karlsson og Arnrún Magnúsdóttir, tilkynntu þetta á starfsmannafundi í gærkvöldi. Meira

24
Innlent | mbl | 4.3 | 11:03

„Það fannst eitthvað hættulegt í kjallaranum“

Frá Kaupmannahöfn.

Íslendingarnir Sebastian Storgaard og kærasta hans Mist Hálfdánardóttir voru meðal íbúa fjölbýlishússins í Gentofte sem urðu fyrir þeirri óþægilegu lífreynslu að vopnabúr uppgötvaðist í kjallaranum. Rýmdi danska lögreglan húsið um tíma í nótt vegna ótta við að sprengja leyndist í einum kassa geymslunnar, sem full var af vopnum, og var sprengjusveit danska hersins kölluð á vettvang til að gera sprengjuna óvirka. Meira

25
Innlent | mbl | 27.3 | 6:54

Vaxandi órói í eldgosinu

Eldgosið á Fimmvörðuhálsi

Nokkuð jafn gangur virðist hafa verið í gosinu á Fimmvörðuhálsi í alla nótt. Töluverður gosórói hefur verið á mælum Veðurstofunnar í nótt og farið heldur vaxandi nú undir morgun, samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum. Mikil umferð hefur verið í alla nótt á Suðurlandi. Meira