Glamúrpían Vala Grand flutti heim til foreldra sinna á dögunum, en hún hætti nýverið með kærasta sínum, blikksmiðnum Baldvin Vigfússyni. Hún er heldur betur fljót að láta til sín taka og lenti í spaugilegu atviki á heimili sínu í vikunni. Meira
Glamúrpían Vala Grand er flutt til Keflavíkur, en þar ætlar hún að búa með foreldrum sínum á meðan hún jafnar sig að fullu eftir kynleiðréttingaraðgerð sem hún gekkst undir fyrr í sumar. Meira
Tvíburarnir Jóhannes og Steinn Þorkelssynir hófu nám í Verzló í haust og hefur hálfgert fár ríkt í skólanum síðan. Strákarnir þykja nefnilega sláandi líkir söngvaranum og hjartaknúsaranum Justin Bieber. Meira
Ríkissaksóknari var upplýstur um það í dag morðið á Hannesi Þór Helgasyni sé upplýst. Hefur 23 ára gamall karlmaður, Gunnar Rúnar Sigurþórsson, játað verknaðinn. Er það byggt á gögnum sem hafa komið fram og var maðurinn einn að verki. Maðurinn játaði í gær og í dag en hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir rúmri viku. Meira
Breskir feðgar drukknuðu við baðströnd á Costa del Sol á Spáni í gær, samkvæmt upplýsingum frá breska utanríkisráðuneytinu. Slysið varð við Playa del Tesorillo í Granada en rauður fáni var á ströndinni vegna mikillar ölduhæðar. Það þýðir að almenningi sé ekki heimilt að fara í sjóinn. Meira
Tveir ungir Þjóðverjar drukknuðu er bifreið þeirra hafnaði í sjónum eftir að ferjan sem þeir voru að keyra frá borði í lagði af stað frá landi á meðan þeir voru enn á landgöngubrúnni. Slysið átti sér stað í höfninni í Genúa á Ítalíu en ferjan var að koma frá ítölsku eyjunni Sardiníu. Meira
Íslenskur starfsmaður Ístaks lést í vinnuslysi á Grænlandi í gærkvöldi. Ístak er að byggja virkjun í Pakitsog sem er um 60 km frá bænum Ilulissat á vesturstönd Grænlands. Maðurinn missti stjórn á fjórhjóli og varð undir því. Meira
Alvarlegt bílslys varð í Kópavogi í nótt. Ökumaður sem var á leið suður Hafnarfjarðarveg með 4 farþega missti stjórn á bílnum í Fossvogi. Ók hann upp á vegrið sem skilur akreinarnar að og hentist bíllinn fram af brúnni niður á Nýbýlaveg þar sem hann valt niður grasbrekku og staðnæmdist upp á rönd Meira
Opnunartími verslana í Kringlunni verður lengdur til miðnættis á fimmtudag, 30. september. Að sögn Sigurjóns Arnar Þórssonar, framkvæmdastjóra Kringlunnar, var áhugi á því að lengja opnunartímann kannaður meðal verslunareigenda og tóku flestir vel í hugmyndina. Meira
Karlmaður og kona hálsbrotnuðu með dags millibili í Skaftárhreppi nú í ágúst. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli fór betur en á horfðist í bæði skiptin og fólkið er ekki talið hafa borið varanlegan skaða af. Meira
Óttast var í kvöld um 5 ára gamlan dreng í Kópavogi, sem skilaði sér ekki heim. Fjölskylda drengisins hafði samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og var verið að undirbúa leit þegar drengurinn kom í leitirnar heill á húfi.
Þriggja vikna gömul áströlsk stúlka lést í morgun á útfarardegi foreldra sinna. Litla stúlkan fæddist 12 vikum fyrir tímann og foreldrar hennar höfðu vitjað hennar á sjúkrahús tvisvar á dag frá því hún fæddist. Foreldrarnir létu hins vegar lífið í bílslysi um síðustu helgi. Meira
Myndband af óstöðvandi hláturskasti fjármálaráðherra Sviss hefur slegið í gegn á youtube en í ræðu sem hann hélt nýverið átti hann erfitt með að halda aftur af hlátrinum. Meira
„Ég biðst innilega afsökunar. Það skiptir ekki máli hvort þetta var í beinni útsendingu eða ekki - maður á ekki að tala svona,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, vegna orða sem hún lét falla að loknu viðtali við fréttamann RÚV í dag. Meira
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að 77 ára gamall karlmaður sæti 2 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungri stúlku. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa tælt stúlkuna með gjöfum, m.a. peningum, skartgripum og fatnaði, til að hafa við sig nánast daglega samræði og önnur kynferðismök frá því stúlkan var 14 ára þar til hún var 18 ára. Meira
Rúmdýna sem ítalski dýnuframleiðandinn Sogniflex hefur sett á markað hefur heldur betur slegið í gegn samkvæmt frétt á Orange vefnum. Dýnan er sér útbúin til þess að þjóna elskendum sem best, meðal annars eru að finna á henni sérstök handföng og aðra fylgihluti sem geta komið sér vel. Meira
Alexandra Líf Ólafsdóttir getur þakkað litlu systur sinni fyrir að vera enn á lífi. Eftir að Alexandra greindist með MDS-krabbamein fyrir rúmu ári var ljóst að hún þurfti að reiða sig á annað en bara lyfjagjöf. Hún þurfti að reiða sig á beinmergsgjöf frá systur sinni. Meira
Vírussmitaður tölvupóstur fer eins og eldur í sinu um tölvuheima en í tölvupóstinum er þeim sem opna viðhengið lofað fríum klámmyndum. Um svo nefndan tölvuorm að ræða því þeir sem sem smella á viðhengið fá engar fríar klámmyndir né annað klámefni heldur kemst tölvuormurinn inn í Outlook nafnaskrá viðkomandi. Meira
Breiðablik tryggði sér í dag sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í knattspyrnu karla frá upphafi með markalausu jafntefli við Stjörnuna. Liðið varð jafnt FH að stigum en með mun betri markatölu. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is. Meira
Hún brosti í gegnum tárin ástralska stúlkan Kelsey Martinovich þegar kynnir þáttarins Australia's next top model lýsti hana sigurvegara eftir langa og stranga keppni. Kynnirinn, Sara Murdoch, fékk svo í magann er hún áttaði sig á því að Martinovich hafði ekki unnið. Meira
Verið er að leggja lokahönd á breytingar á ríkisstjórn Íslands, sem m.a. fela í sér að þeir ráðherrar sem gjarnan hafa verið nefndir fagráðherrar, þau Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, láta af störfum. Meira
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir í viðtali við Bloomberg fréttastofuna, að deilur Íslendinga við Breta og Hollendinga um Icesave veki upp spurningar um aðildarumsókn Íslendinga að Evrópusambandinu. Meira
Breska götublaðið Sun telur sig hafa heimildir fyrir því að Jenny Thompson, gleðikonan sem átti vingott við Wayne Rooney, framherja Manchester United, hafi stært sig af því að hafa selt minnst þremur öðrum leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar blíðu sína. Reynist það rétt gæti málið undið upp á sig. Meira
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir í Árbæjarhverfi í Reykjavík. Um er að ræða gangandi menn á aldrinum 20 til 30 ára sem hafa verið að taka myndir af húsum. Meira
Nokkuð hefur verið fjallað um ummæli Jóns Gnarr borgarstjóra í viðtali við franska fréttastofu um að hann skoði mest klám aðspurður um netnotkun sína. Jón segist í viðtali við Mbl sjónvarp ekki sjá eftir ummælunum, þau hafi verið slitin úr samhengi auk þess sem hann sé og verði alltaf óviðeigandi. Meira