Landsliðshópur Íslands: Fimm bætast við en fjórir fara út

Birkir Bjarnason er á sínum stað í íslenska hópnum.
Birkir Bjarnason er á sínum stað í íslenska hópnum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er ekki í íslenska landsliðshópnum sem mætir Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM 2022 í október.

Leikirnir fara fram dagana 8. október og 11. október á Laugardalsvelli en Arnór Þór Viðarsson, þjálfari íslenska liðsins, tilkynnti landsliðshóp sinn á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag.

Aron er heill heilsu en ný bráðabirgðastjórn KSÍ, sem tekur formlega við embætti á laugardaginn kemur, bannaði landsliðsþjálfaranum að velja fyrirliðann.

Sveinn Aron Guðjohnsen, Stefán Teitur Þórðarson, Elías Rafn Ólafsson, Ari Leifsson og Elías Már Ómarsson bætast í hópinn frá síðasta verkefni landsliðsins í september en Hannes Þór Halldórsson, Kári Árnason, Arnór Sigurðsson og Gísli Eyjólfsson fara út úr hópnum.

Allir í hópnum eiga A-landsleiki að baki nema markverðirnir Patrik Sigurður Gunnarsson og Elías Rafn Ólafsson en þeir hafa báðir verið í hópnum áður.

Landsliðshópur Íslands:

Markverðir:
Patrik Sigurður Gunnarsson - Viking Stavanger
Rúnar Alex Rúnarsson - OH Leuven - 12 leikir
Elías Rafn Ólafsson - Midtjylland

Varnarmenn:
Jón Guðni Fjóluson - Hammarby - 18 leikir, 1 mark
Ari Leifsson - Strömsgodset  - 1 leikur
Brynjar Ingi Bjarnason - Lecce - 6 leikir, 2 mörk
Hjörtur Hermannsson - Pisa - 23 leikir, 1 mark
Ari Freyr Skúlason - Norrköping - 81 leikur
Guðmundur Þórarinsson - New York City - 9 leikir
Alfons Sampsted - Bodo/Glimt - 5 leikir
Birkir Már Sævarsson - Valur - 101 leikur, 3 mörk

Miðjumenn:
Þórir Jóhann Helgason -  Lecce - 3 leikir
Ísak Bergmann Jóhannesson - Köbenhavn - 7 leikir
Birkir Bjarnason - Adana Demirspor - 101 leikur, 14 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg - 4 leikir
Andri Fannar Baldursson - Köbenhavn - 7 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson - Schalke - 28 leikir, 1 mark

Sóknarmenn:
Albert Guðmundsson - AZ Alkmaar - 25 leikir, 4 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - AGF - 12 leikir, 1 mark
Mikael Neville Anderson - AGF - 10 leikir, 1 mark
Jóhann Berg Guðmundsson - Burnley - 81 leikur, 8 mörk
Andri Lucas Guðjohnsen - Real Madrid Castilla - 3 leikir, 1 mark
Sveinn Aron Guðjohnsen - Elfsborg - 4 leikir
Viðar Örn Kjartansson - Vålerenga - 30 leikir, 4 mörk
Elías Már Ómarsson - Nimes - 9 leikir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert