Butland hugsanlegur arftaki Courtois

Jack Butland er á óskalista Chelsea.
Jack Butland er á óskalista Chelsea. AFP

Chelsea ætlar að kaupa Jack Butland, markmann Stoke City, til að koma í staðinn fyrir Thibaut Courtois, fari svo að Belginn verði seldur til Real Madrid. Courtois á eitt ár eftir af samningi sínum við Chelsea og hefur hann áhuga á að færa sig til Madrid. 

Chelsea ætlar hins vegar ekki að selja Courtois fyrr en annar markmaður er kominn inn um dyrnar. Chelsea hafði einnig áhuga á Jordan Pickford, markmanni Everton, en bláa félagið í Liverpool hafði engan áhuga á að selja aðalmarkmann enska landsliðsins. 

Forráðamenn Chelsea hafa nú þegar sett sig í samband við kollega sína hjá Stoke, en ekkert tilboð hefur litið dagsins ljós enn þá. Talið er að Stoke vilji fá um 30 milljónir punda fyrir Butland. 

Thibaut Courtois vill fara til Real Madrid.
Thibaut Courtois vill fara til Real Madrid. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert