Ólafía fór holu í höggi – myndskeið

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir með dræverinn á 13. teig í dag.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir með dræverinn á 13. teig í dag. AFP

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, íþróttamaður ársins 2017, fór holu í höggi á 17. holu á ANA Inspirati­on-mót­inu sem er fyrsta risamót ársins í golfi en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni bandarísku sem er sú sterkasta í heimi.

Myndskeið af högginu ótrúlega hjá Ólafíu má sjá hér að neðan en draumahöggið fór hún á 17. holunni sem er par 3 og 164 metra löng.

Ólafía fær fyrir draumahöggið tvo miða á fyrsta farrými ANA-flugfélagsins á hvaða áfangastað flugfélagsins sem er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert