Snjóflóð fyrir ofan Stórutjarnarskóla í Fnjóskadal sem Þorgeir Baldursson, fréttaritari mbl.is og Morgunblaðsins, tók myndir af í dag féll líklega á síðasta sólarhring.
Þetta segir Hulda Rós Helgadóttir, sjóflóðasérfræðingur á vakt Veðurstofunnar, í samtali við mbl.is. Ekki er vitað til þess að flóðið hafi valdið skaða á innviðum.
Hulda segir að enn virðist vera hætta á votum snjóflóðum, sérstaklega úr giljum þar sem snjór hefur safnast fyrir og vatn á nú leið um.
„Þessi hætta ætti að fara smám saman minnkandi með kólnandi veðri um helgina,“ segir hún.