Sigurður Álfgeir til liðs við Síldarvinnslunna

Sigurður Álfgeir Sigurðarson hefur hafið störf hjá Síldarvinnslunni.
Sigurður Álfgeir Sigurðarson hefur hafið störf hjá Síldarvinnslunni. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Smári Geirsson

Síldarvinnslan hf. hefur ráðið Sigurð Álfgeir Sigurðarson, löggiltan endurskoðanda, til starfa sem yfirmann reikningshalds samstæðunnar. Mun hann meðal annars hafa umjón með árshlutauppgjörum og ársuppgjörum ásamt því að sinna margvíslegum öðrum störfum á fjármálasviði, að því er segir í tilkynningu á vef Síldarvinnslunnar.

„Sífellt eru gerðar meiri kröfur til fyrirtækja um að þau hafi handbærar margvíslegar upplýsingar um starfsemi sína og mun Sigurður hafa umsjón með samantekt slíkra upplýsinga sem bæði eru fjárhagslegs eðlis og ófjárhagslegs,“ segir í tilkynnignunni.

Sigurður er Strandamaður að uppruna og alinn upp á bænum Kollafjarðarnesi til 15 ára aldurs. Grunnskóla sótti hann til Hólmavíkur. Hann lagði stund á framhaldsskólanám í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki og síðar í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Sótti hann síðan ná í Háskóla Íslands ig hóf að starfa hjá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte samhliða námi. Sigurður varð löggiltur endurskoðandi árið 2008. Hefur hann gengt starfi yfirmanns rekstrar Deloitte á Austurlandi frá árinu 2010 og þar til hann hóf störf hjá Síldarvinnslunni.

Á vef Síldarvinnslunnar kvaðst Sigurður lítast afskaplega vel að hefja störf hjá fyrirtækinu.  „Ég ólst upp við sjósókn yfir sumartímann á Ströndunum og fékk snemma mikinn áhuga á öllu sem tengdist sjávarútvegi. Ég tók til dæmis pungapróf þegar ég var 13 ára gamall þó ég fengi ekki formleg réttindi fyrr en ég varð 18 ára. Ég hef átt bát í mörg ár og notið þess að fara á sjó á honum. Hér fyrir austan hef ég unnið að endurskoðun og ráðgjöf hjá sjávarútvegsfyrirtækjum og þekki því til þannig reksturs. Meðal annars hef ég sinnt störfum sem tengjast Síldarvinnslunni og verið í góðu sambandi við forsvarsmenn fyrirtækisins. Ég hef notið þess lengi að vinna með hæfileikaríku fólki og ég hlakka sannarlega til að sinna störfum með starfsfólki Síldarvinnslunnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »