Ók yfir eiganda sinn

Konan fellur undir bílinn sem heldur áfram á rólegri ferð …
Konan fellur undir bílinn sem heldur áfram á rólegri ferð og ekur yfir hana.

Ótrúlegt atvik átti sér stað í borginni Burlington í Washingtonríki í Bandaríkjunum á dögunum. Í bókstaflegri merkingu má segja að bíll hafi ekið yfir eiganda sinn.

Kona nokkur nam staðar, eins og lög gera ráð fyrir, á ljósastýrðum gatnamótum. Þar freistaði hún þess að loka lúgunni fyrir bensíntanknum en er hún var nýstigin út úr bílnum tók hún eftir því að hann hélt áfram á vægri ferð.

Því miður tókst ekki betur til en svo er hún hugðist ná stjórn á bílnum að hún féll í jörðina. Hélt bíllinn áfram ferðinni og ók yfir lappir hennar, svo sem sjá má á meðfylgjandi myndskeiði. Bílstjórinn með myndavélina í bílnum bauð konunni aðstoð sína vegna hugsanlegra meiðsla. En hún bar sig vel og afþakkaði aðstoðina, kvað sig ekki þurfa á henni að halda.

Sjón er sögu ríkari.

Konan komin undan bílnum sem heldur áfram á rólegri ferð.
Konan komin undan bílnum sem heldur áfram á rólegri ferð.
mbl.is