Hyundai í Garðabæ kynnir í janúar uppfærða og enn sportlegri og tæknivæddari útgáfu af annarri kynslóð litla fimm manna fólksbílsins i10 sem frumsýndur var á alþjóðlegu bílasýningunni í París í september sl.
„Auk ýmissa útlitsbreytinga setur nýi bíllinn ný viðmið í sínum stærðarflokki hvað tengimöguleika varðar og er óhætt að segja að hér hafi Hyundai komið sérlega vel til móts við nútíma þægindakröfur, ekki síst í huga unga fólksins sem vill vel tengda bíla,“ segir í tilkynningu.
Hið klassíska yfirbragð i10 hefur fengið ferskara yfirbragð með endurhönnuðum framstuðara sem gengur þvert yfir stallað grillið. LED-dagljósin hafa fengið nýjan stað og setja mikinn svip á útlit bílsins.
Auk þess skerpa nýjar felgur, þar sem hægt er að velja um mismunandi útlit og stærðir (13”, 14” og 15” ál eða stál), skrautlisti á afturstuðara og endurhannaðar ljósasamstæður að aftan mjög á heildaryfirbragði bílsins.
Í innréttingu verður hægt að velja um fimm litasamsetningar tveggja aðallita, þar sem svartur leikur annað aðalhlutverkið. Á móti honum má velja rauðan lit, appelsínugulan, bláan, drappaðan eða dökkgráan.
Vel tengdur
Tengimöguleikar i10 eru miklir. Í farþegarýminu verða m.a. að finna nýtt leiðsögukerfi á nýjum 7” skjá og LIVE Services, Apple CarPlayTM til að tengja við iPhone-síma og Android AutoTM til að tengja við samhæfa Android-snjallsíma.
Í vegaleiðsögn LIVE Services fylgja umferðarupplýsingar í rauntíma, viðvaranir um hraðamyndavélar þar sem lög leyfa og upplýsingar um veðuraðstæður og áhugaverða staði á ferðalaginu. Einnig má nefna nýja hönnun á hleðslukví fyrir snjallsíma sem staðsett er á góðum stað til að síminn geti þjónað leiðsagnarhlutverki eða gert notandanum auðveldara með að stjórna spilun tónlistar á meðan rafhlaðan er að hlaðast.
Sparneytin þriggja strokka vél
Hyundai i10 verður boðinn með sparneytinni eins lítra 66 hestafla þriggja strokka bensínvél þar sem dregið hefur úr útblæstri um 5g/km, fer í 93g/km. Að meðaltali er eyðslan 4,7 l/100 km. Bíllinn verður bæði boðinn beinskiptur eða með sjálfskiptingu auk þess sem fjögur útbúnaðarstig verða í boði.
Meðal öryggisbúnaðar i10 er hraðastillir með hraðatakmörkun, eftirlit með loftþrýstingi í hjólbörðum, neyðarstöðvunarmerki, stöðugleikastýring og brekkuaðstoð. Hægt verður að sérpanta i10 með 87 hestafla 1,25 lítra fjögurra strokka vél og með meiri öryggisbúnaði, m.a. ákeyrsluviðvörun að framan, akreinaskynjara, svo eitthvað sé nefnt.