BL frumsýnir nýjan Nissan Navara

Nissan Navara.
Nissan Navara. Ljósmynd/Bernhard Kristinn

BL frumsýnir nýja Nissan Navara pallbíl laugardaginn 18. febrúar og sýningargestum sem leggja leið sína í sýningarsal BL gefst kostur á að reynsluaka bílnum í nýrri AT38 útgáfu. Arctic Trucks hefur á undanförnum mánuðum unnið að því að breyta bílnum og notast við efni til breytinga að mestu frá Nissan.

Navara hentar vel til breytinga

„Nissan Navara er í grunninn til vel útbúinn bíll til breytinga,“ segir Loftur Ágústsson, markaðsstjóri BL. „Hann kemur með fjölarma gormafjöðrun frá framleiðanda og er búinn 2,3 lítra dísilvél sem er 190 hestöfl og drífur hann mjög vel áfram þrátt fyrir dekkjastærðina. Íhlutirnir til stækkunar á framdrifinu, sem verður eftir breytingu 8,5 tommur, kemur frá Nissan í Ameríku og passa beint í framdrifið á Navara. Eftir breytinguna á framdrifinu er undirvagninn orðinn með því sterkasta sem völ er á. Við erum mjög ánægðir með útkomuna og ljóst að þessi nýja útgáfa af Navara er vel útbúinn í grunninn og hentar því vel til breytinga“ segir Loftur ennfremur.

100% driflæsing að framan og aftan

Navara pallbíllinn kemur með driflæsingu að aftan frá framleiðanda en Arctic Trucks setti síðan ARB loftlæsingu í framdrifið. Fjöðrunin að framan og aftan hefur verið lengd með FOX Performance dempurum sem bæta aksturseiginleika við erfiðar aðstæður og auðvelda ökumanni að beita bílnum að fullu afli, að sögn Lofts.

„Við erum bæði spenntir og stoltir að kynna þessa nýju AT38 útfærslu af Navara. Við höfum undanfarið lagt mikla áherslu á að kynna þennan nýja bíl sem hefur hlotið lof þeirra sem til þekkja og nægir að nefna að hann var valinn af Íslenskum bílablaðamönnum bíll ársins í sínum flokki 2017 auk þess sem hann sigraði í sparaksturskeppni FÍB í sumar. Og nú ætlum við bjóða fólki að koma og reynsluaka Navara í alvöru jeppa útfærslu,“ sagði Loftur að lokum.

mbl.is