Framlengja sýningu Lexus LC 500h

Þröng á þingi í Lexussalnum í Kauptúni í dag, á …
Þröng á þingi í Lexussalnum í Kauptúni í dag, á frumsýningu soprtbílsins Lexus LC 500h.

Sportbíllinn Lexus LC 500h sló í gegn á forsýningu sem haldin var í dag og því hefur verið ákveðið að framlengja sýninguna. Verður opið á morgun, sunnudag frá kl 12 – 16 hjá Lexus Kauptúni.

Þar verður LC 500h sýndur ásamt öðrum glæsilegum Lexusbílum, að því er fram kemur í tilk.ynningu.

LC 500h var fluttur sérstaklega til landsins með flugi fyrir þessar sýningu og verður sendur aftur úr landi í næstu viku. Þetta eru því síðustu forvöð til að sjá bílinn áður en hann kemur á markað síðar á árinu.  

mbl.is