Stórafsláttur hjá Ford á svörtum föstudegi

Ford Focus Black Friday Edition.
Ford Focus Black Friday Edition.

Ford Focus Black Friday Edition ber nafn með rentu fyrir neytendur því á Svörtum föstudegi hjá Brimborg í vikunni verður hann með 400.000 kr. afslætti og í kaupbæti fylgja honum vetrardekk.

„Staðalbúnaður Ford Focus er á pari við margan lúxusbílinn. Hann er með loftkælingu og upphitanlegri framrúðu, fékk fimm stjörnur í öryggisprófi EuroNcap, er sítengdur með blátannarbúnaði, búinn nýjustu tækni eins og íslensku leiðsögukerfi og átta tommu snertiskjá,“ segir í tilkynningu.

Ford Focus Black Friday Edition er búinn hálfsjálfvirkri  bílastæðaaðstoð og leggur því sjálfur í stæði. Allar gerðir bíla eru teknar upp í nýjan Focus.

Opið lengur

Á föstudaginn kemur verður opið til kl. 19 í Reykjavík, Bíldshöfða 6, og á Akureyri, Tryggvabraut 5. Tilboðið gildir líka á laugardaginn 25. nóvember, en þá er opið klukkan 12-16.

mbl.is