BL innkallar 517 Nissan Navara

BL ehf. hefur innkallað bifreiðar af gerðinni Nissan Navara D40, árgerð 2005-2012. Um er að ræða 517 bifreiðar. Innköllunin felst í því að skoðuð og mæld er grind bifreiðanna, þ.e. hvort styrkleiki grindarinnar sé nægilegur miðað við staðla, vegna gruns um óeðlilega tæringu í grindinni.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Þar segir að þær bifreiðar sem þegar hafi verið skoðaðar verði aftur kallaðar inn til skoðunar þar sem þessi skoðun verði ítarlegri en áður. Ef grindin er í lagi verður hún varin með þar til gerðum efnum til að verja grindina fyrir skemmdum.

BL mun hafa samband við eigendur vegna þessarar innköllunar.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við BL ef þeir eru í vafa.

mbl.is