Útbúðu slöngu og settu trekt endann. Helltu bensíni í dæluna og þá fer allt í gang, segir í bílapistli vikunnar.
Útbúðu slöngu og settu trekt endann. Helltu bensíni í dæluna og þá fer allt í gang, segir í bílapistli vikunnar. — Morgunblaðið/Þorkell
„Dauður“ Opel Spurt: Ég þurfti að stöðva á Keflavíkurveginum til að svara farsímanum. Þegar ég ætlaði af stað aftur fór vélin ekki í gang – tók ekki við sér svo mikið sem eitt púst.

„Dauður“ Opel

Spurt: Ég þurfti að stöðva á Keflavíkurveginum til að svara farsímanum. Þegar ég ætlaði af stað aftur fór vélin ekki í gang – tók ekki við sér svo mikið sem eitt púst. Þetta er 7 ára gamall Opel Astra og var í góðu lagi fram að þessu. Ég skildi bílinn eftir og sendi þér fyrirspurn með netbréfi. Þú sagðir að þar sem þessi bilun hefði ekki haft neinn aðdraganda né bilunarljós kviknað gæti líkleg orsök verið bilun í bensíndælu sem er í bensíngeyminum. Að þínu ráði tók ég með mér góðan hamar og eftir að hafa gefið bensíngeyminum gott drag (undir hægra aftursætinu) datt vélin í gang og ég ók heim án vandræða. En til að eiga þetta ekki á hættu á ný fór ég einnig að þínum ráðum og fjárfesti í nýrri bensíndælu og endurnýjaði samkvæmt leiðbeiningum. En þá bregður svo við að vélin er „steindauð“ þótt greinilega heyrist í nýju dælunni. Hvað er nú til ráða? Getur verið að nýja dælan sé biluð?

Svar: Þú hefur sjálfsagt tæmt gömlu bensíndæluna eins og vera ber. Þér hefur hins vegar láðst að fylla þá nýju („præma“ á vondu máli). Hvíti plasthólkurinn á dælunni, sá hluti sem gengur niður í geyminn, rúmar um 1 lítra af bensíni sem ekki lekur niður af. Það er aukaforði sem girðir fyrir að hreyfingar bílsins valdi því að dælan „grípi í tómt“. Sé hann tómur nær dælan ekki upp þrýstingi. Þú þarft ekki að taka dæluna aftur úr. Taktu aftursætið úr og aftengdu grennri lögnina á dælunni. Útbúðu slöngu sem passar upp á stútinn og settu netta trekt á hinn enda slöngunnar. Helltu 1 lítra af bensíni í dæluna, tengdu lögnina á ný og vélin mun fara í gang.

Daewoo Nubira: Stirðar þurrkur

Spurt: Ég er með árg. 02 af Nubira. Undanfarið hafa þurrkurnar verið leiðinlegar, hnökra með tilheyrandi óhljóðum. Þær eiga það til að stöðvast á miðri rúðunni en fara oftast aftur af stað ýti maður við þeim. Ég lét skipta um þurrkublöð og bera á þau efni sem á að gera þau hál en það breytti engu. Á smurstöð var mér sagt að líklega væri þurrkumótorinn ónýtur. Mér skilst að hann geti kostað talsvert svo öll góð ráð væru vel þegin.

Svar: Þurrkumótorar í þessum bílum eru gríðarlega sterkir og bila sjaldan. Í langflestum tilfellum eins og þú lýsir stafar vandinn af stirðum spindlum, en það eru öxlarnir sem snúa þurrkuörmunum. Þeir eru í hólkum sem í eru stálfóðringar. Í þær sest ryk og óhreinindi þar til spindlarnir festast. Viðgerð er ekki flókin. Merktu með tússi hvar þurrkublöðin setjast á rúðuna. Losaðu rærnar af þurrkuörmunum og þrýstu niður á þá ofan við spindilinn en við það losna þeir af. Fjarlægðu plasthlífina sem er fyrir neðan framrúðuna. Skrúfurnar á endum hlífarinnar skrúfast niður í nælonklossa og oftast þarf að höggva þær sundur með beittum meitli. Losaðu arm mótorsins af spindildrifi hægri þurrkunnar (slærð hann niður af kúlunni með hamarsskafti) en láttu arminn vera kyrran á mótornum. Losaðu boltana sem halda spindlunum (3 hvorum megin) og farðu með drifbúnaðinn á renniverkstæði og fáðu spindlana losaða úr. Þeir geta verið mjög fastir í og hætt við að spindilhólkarnir brotni sé ekki beitt réttum verkfærum. Yfirleitt þarf ekki viðgerð, einungis að losa spindlana, þrífa þá og fóðringarnar, smyrja og endurnýja o-hring sem er í stútnum undir skífu og splitti. Ísetningin er auðveld og þurrkurnar munu verða eins og nýjar.

Jafn þrýstingur í dekkjum mikilvægur

Til að öryggisbúnaður (ABS, stöðugleikakerfi og fleira ) skili bestum árangri þurfa dekk að hafa réttan og jafnan þrýsting. Belgur, sóli og munstur fólksbíladekkja eru frábrugðin því sem var fyrir 25 árum; mörg dekk eru með stefnuvirkt munstur og því ekki sama hvorum megin þau eru undir bíl (merkt með pílu). Hámarksöryggi og sparneytni fólksbíls næst þegar þrýstingur í dekkjum er 32 psi (2 kp/fsm). Munsturdýpt getur sýnt hvort þrýstingur sé sá rétti: Slitni sóli meira á miðjunni er þrýstingur of mikill. Slitni munstrið meira á báðum jöðrum sólans en á miðjunni er þrýstingurinn of lítill.

Leó M. Jónsson véltæknifræðingur leoemm@simnet.is (Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á www.leoemm.com)