48 tímar í Portó: Vínekrur, sigling og arkitektúrperlur

Blaðamaður ferðavefs mbl.is skellti sér í vikulangt ferðalag til Portó …
Blaðamaður ferðavefs mbl.is skellti sér í vikulangt ferðalag til Portó í Portúgal í sumar. Samsett mynd

Portó var meðal vinsælustu áfangastaða Íslendinga í sumar, enda spennandi borg sem býður upp á merka sögu, fallegan arkitektúr og ljúffenga matarsenu. Blaðamaður ferðavefs mbl.is var meðal þeirra sem freistuðust til að heimsækja borgina í sumar og upplifði portúgalska töfra beint í æð.

Portó er önnur stærsta borg Portúgals og er byggð þvert yfir hæðir sem ná niður að bökkum Douro-árinnar. Eftir vikulangt ferðalag um borgina eru nokkrir staðir sem standa upp úr og ættu að vera á dagskrá allra sem leggja leið sína til borgarinnar.

Að gera

Sigling á Douro-ánni

Douro-áin er ein stærsta á Portúgals og Spánar, alls 765 km að lengd. Hún á upptök sín nálægt Soria á Spáni og rennur alla leið til Portó þar sem hún mætir hafi. 

Það er tilvalið að skella sér í siglingu á Douro-ánni, en þannig er hægt að upplifa stóran hluta borgarinnar á stuttum tíma. Það er einstakt sjónarspil að horfa upp þétt byggðar hæðirnar sem liggja niður að ánni. 

Sjónarspilið er ekki síður fallegt á kvöldin, en það er …
Sjónarspilið er ekki síður fallegt á kvöldin, en það er dásamlegt að ganga meðfram ánni í ljósaskiptunum. mbl.is/Irja Gröndal

Vínekrurnar í Douro-dalnum

Douro-dalurinn er staðsettur í um eins og hálfs tíma akstursfjarlægð frá Portó og dregur nafn sitt af Douro-ánni sem rennur eftir dalnum. Það er vel þess virði að leggja leið sína í dalinn enda er hann elsta afmarkaða vínhérað í heimi. 

Þegar keyrt er inn í dalinn taka á móti manni hæðir fullar af guðdómlegum vínekrum þar sem aðallega eru ræktuð ber í púrtvín. Það er vel hægt að mæla með ferð á vínekrurnar fyrir alla ferðalanga og líka þá sem drekka ekki vín, en náttúrufegurðin og friðsældin í dalnum uppfylla allar væntingar og meira en það.

Heimsókn í Douro-dalinn er ómissandi hluti af ferðalagi til Portó.
Heimsókn í Douro-dalinn er ómissandi hluti af ferðalagi til Portó. mbl.is/Irja Gröndal
Vínekrurnar eru sannkölluð paradís.
Vínekrurnar eru sannkölluð paradís. mbl.is/Irja Gröndal

Að skoða

Dom Luís-brúin

Douro-áin spilar áfram lykilhlutverk á meðmælalistanum, en það er erfitt að komast hjá því að skoða hina frægu Dom Luís-brú sem liggur yfir ána á milli Portó og Vila Nova de Gaia. Brúin býr yfir merkri sögu en hún var hönnuð af nemanda Gustave Eiffel, manninum á bakvið hinn fræga Eiffel-turn í París.

Dom Luís-brúin er þó ekki eina brúin í Portó, en það er merkilegt að skoða brýrnar sem liggja yfir Douro-ána. Þær eru margar hverjar gríðarlega háar og setja án efa sterkan svip á borgina.

Hægt er að slá tvær flugur í einu höggi og …
Hægt er að slá tvær flugur í einu höggi og skoða brýrnar frá skemmtilegu sjónarhorni á siglingu um Douro-ána. mbl.is/Irja Gröndal

Ribeira-hverfið 

Það er einstakt að ganga um Ribeira-hverfið sem liggur meðfram Douro-ánni. Hverfið er eitt af elstu hverfum borgarinnar og hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá árinu 1996.

Portó ætti ekki að vera lengi að heilla arkitektúrunnendur upp úr skónum, en borgin er þekkt fyrir barokk, nýklassískan og módernískan byggingarstíl. Það sem einkennir hins vegar Ribeira-hverfið eru terrocotta-flísalögð þök, pastellituð hús, einstakar málaðar portúgalskar flísar og skærar hurðir.

Byggingarstíllinn í hverfinu er afar sjarmerandi.
Byggingarstíllinn í hverfinu er afar sjarmerandi. mbl.is/Irja Gröndal
Í Portó má þó finna ýmsa byggingarstíla sem gleðja augað.
Í Portó má þó finna ýmsa byggingarstíla sem gleðja augað. mbl.is/Irja Gröndal

Gisting

M.Ou.Co hótel

Það er tvennt sem stóð upp úr á þessu hóteli – afar falleg hönnun og virkilega notaleg sund- og sólbaðsaðstaða. Hótelið er staðsett á góðum stað í Portó og býr yfir einstakri fagurfræði.

Það er óhætt að segja að það hafi verið mikil upplifun að gista á hótelinu, en það fellur ekki einungis vel í kramið hjá hönnunarunnendum heldur einnig tónlistarunnendum. Á fyrstu hæð hótelsins er vínylplötusafn og í hverju herbergi er vínylplötuspilari sem skapar skemmtilega stemningu.

Þetta skapaði skemmtilegan kontrast til móts við róandi umhverfi og minimalíska hönnun hótelsins sem gerði ferðina enn eftirminnilegri.

Fagurfræði hótelsins greip augað um leið og gengið var inn.
Fagurfræði hótelsins greip augað um leið og gengið var inn. mbl.is/Irja Gröndal
Vínylplötusafnið var afar fallega innréttað.
Vínylplötusafnið var afar fallega innréttað. mbl.is/Irja Gröndal
Sundlaugin og sólbaðsaðstaðan var afar notaleg og falleg í takt …
Sundlaugin og sólbaðsaðstaðan var afar notaleg og falleg í takt við restina af hótelinu. mbl.is/Irja Gröndal

Matur og drykkur

Mendi

Indverski veitingastaðurinn Mendi toppaði ferðina algjörlega. Þangað voru farnar tvær ferðir, ein fýluferð í byrjun ferðarinnar þar sem komið var að lokuðum dyrum, og önnur ferð í lok ferðarinnar þar sem bragðlaukarnir komust í sannkallaða paradís.

Fýluferðin varð vel þess virði þegar kræsingarnar voru smakkaðar í …
Fýluferðin varð vel þess virði þegar kræsingarnar voru smakkaðar í seinni ferðinni. mbl.is/Irja Gröndal

Borða við ána

Það er nauðsynlegt að eyða einni kvöldstund hið minnsta við Douro-ána, en meðfram ánni er að finna fjölda spennandi veitingastaða og kaffihúsa. Það ætti því að vera auðvelt fyrir alla að finna eitthvað við hæfi og enda kvöldið svo á því að rölta meðfram ánni og fylgjast með sólsetrinu.

Einstakt sjónarspil tók á móti manni þegar sólin fór að …
Einstakt sjónarspil tók á móti manni þegar sólin fór að lækka. mbl.is/Irja Gröndal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert