Nafnavandamál hjá fimmta barninu

Hjónin hafa verið gift frá árinu 2015.
Hjónin hafa verið gift frá árinu 2015. Skjáskot/Instagram

Peter Andre og eiginkona hans Emily eignuðust á dögunum þriðja barn sitt saman sem reyndist vera stúlka.

Hjónin eru eðlilega í skýjunum með viðbótina en Andre hefur þó viðurkennt að nafnagjöfin hefur reynst þeim erfið.

„Enn ekkert nafn komið. Við eigum í stökustu vandræðum. Nöfnin sem við vorum með í huga passa hreinlega ekki við hana,“ segir Peter Andre á samfélagsmiðlum.

Þetta er fimmta barn Andre en hann átti fyrir tvö börn með glamúrfyrirsætunni Katie Price. Oft reynir á samband hans við barnsmóður sína og deila þau mikið um áherslur í uppeldinu. Price hefur sakað konu Andre um að eitra samband sitt við börnin og Andre hefur miklar áhyggjur af líferni Price og þau neikvæðu áhrif sem lífsstíll hennar getur haft á börnin.

Peter Andre með nýfætt stúlkubarn sitt í fanginu.
Peter Andre með nýfætt stúlkubarn sitt í fanginu. Skjáskot/Instagram
Peter Andre var áður giftur Katie Price og á með …
Peter Andre var áður giftur Katie Price og á með henni tvö börn. Skjáskot Daily Mail



View this post on Instagram

A post shared by Peter Andre (@peterandre)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert