Vinkona Prince minnist nauðlendingarinnar

Prince lést fyrr á árinu, eftir að hafa tekið of …
Prince lést fyrr á árinu, eftir að hafa tekið of stóran skammt ópíumskyldra lyfja. AFP

Söngkonan Judith Hill var á ferð með Prince þegar flugvél hans þurfti að nauðlenda í Illinois viku fyrir andlát hans. Söngvarinn var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús, þaðan sem hann var síðan útskrifaður þremur klukkustundum síðar.

Viku síðar fannst Prince látinn á heimili sínu, en hann hafði tekið inn of stóran skammt ópíumskyldra verkjalyfja.

Hill var einn af þremur farþegum flugvélarinnar en með í för var einnig góðvinur söngvarans, Kirk Johnson.

Eftir að hafa snætt kvöldverð með söngvaranum sagði Hill að augu hans hefðu frosið og ef hún hefði ekki horft beint framan í hann hefði hún eflaust haldið að hann væri sofandi.

„Ég hélt að hann væri farinn, við vorum ekki með neitt um borð sem gat hjálpað honum,“ sagði söngkonan í samtali við New York Times.

Hill og Johnson gerðu flugstjóra vélarinnar umsvifalaust viðvart um ástand söngvarans, sem í kjölfarið sendi flugumferðarstjóra í Chicago hjálparbeiðni.

„Við vissum að það væri aðeins tímaspursmál. Við þurftum að lenda.“

Flugvélin nauðlenti síðan í Illinois, þar sem sjúkrabíll tók á móti söngvaranum. Prince var sprautaður með lyfinu Narcan, sem notað er við ofskömmtum ópíumskyldra lyfja, og fluttur á spítala að því loknu.

Hill segir að Prince hafi verið kominn til meðvitundar þegar á sjúkrahúsið var komið. Þá segir hún söngvarann einnig hafa verið afar samvinnuþýðan og tilbúinn að leita sér hjálpar.

Judith Hill hafði unnið með söngvaranum.
Judith Hill hafði unnið með söngvaranum. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur verið erfitt að opna augu samferðamanna sinna og svo sannarlega að hafa það á tilfinningunni að maður sé einn í heiminum. Sýndu þig verðugan að vera frjáls.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það getur verið erfitt að opna augu samferðamanna sinna og svo sannarlega að hafa það á tilfinningunni að maður sé einn í heiminum. Sýndu þig verðugan að vera frjáls.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav