Berir karlmenn vísun í Hendrix

Plata Kristínar Önnu.
Plata Kristínar Önnu.

Breiðskífa Kristínar Önnu Valtýsdóttur, I Must Be the Devil, kemur út á morgun á vegum útgáfunnar Bel-Air Glamour Records í samstarfi við The Vinyl Factory í New York og heldur Kristín útgáfutónleika af því tilefni í Dómkirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 21. Kristín tók plötuna upp í samstarfi við tónskáldið Kjartan Sveinsson sem hún hefur áður unnið með og af öðrum listamönnum sem hún hefur átt í góðu samstarfi við má nefna Ragnar Kjartansson, Bryce og Aaron Dessner, Animal Collective og Mice Parade.

Tónlistarmyndband við eitt laga plötunnar, „Forever Love“, hefur þegar verið gefið út og má m.a. finna það á YouTube. Myndbandinu leikstýrðu Allan Sigurðsson og Ragnar Kjartansson fyrrnefndur og má í því sjá verk eftir Ragnar í ljósum logum, málverk af logum sem hann málaði á viðarplötur.

Umslag plötunnar hefur þegar vakið mikla athygli en á því má sjá hóp nakinna karlmanna sem margir hverjir eru þjóðkunnir og Kristínu Önnu fullklædda fyrir framan þá. Ljósmyndin er greinileg vísun í umslag plötunnar Electric Ladyland með The Jimi Hendrix Experience. Gítarhetjan Hendrix var að vísu fjarri góðu gamni í þeirri myndatöku en ein fyrirsætan heldur þó á ljósmynd af honum.

Náin sambönd

Blaðamaður sló á þráðinn til Kristínar í byrjun viku og spurði hana fyrst út í þessa forvitnilegu ljósmynd á umslagi plötunnar og hvers vegna verið væri að vísa í hina þekktu plötu Hendrix, Electric Ladyland. „Hugmyndin að plötukápunni kemur frá Ragnari Helga Ólafssyni sem er grafískur hönnuður og ferlega klár. Hann fékk bara þessa hugmynd og við hlógum öll að henni og ákváðum svo í öllum alvarleikanum að hrinda henni í framkvæmd,“ svarar Kristín. Hún segist áður hafa vísað í plötukápu með þessum hætti, á plötu sinni Howl en ljósmyndin á umslagi þeirrar skífu er óbein vísun í Houses of the Holy með Led Zeppelin. „Það lá því beinast við að halda áfram þessu samtali við rokksöguna,“ segir Kristín kímin.

Hún segir myndatökuna hafa farið fram í Þjóðleikhúsinu og staðsetningin hafi veitt fyrirsætunum ákveðið frelsi. „Þar má maður skipta um föt fyrir framan alla og strákarnir fóru allir í smink, fengu olíu á kroppinn og svo var skúlptúrinn gerður. Síðan stóðu bara allir upp, fóru úr og þá var smellt af. Þannig að þetta var svona „happening“,“ útskýrir Kristín og að úr hafi orðið þessi fallegi karlmannaskúlptúr.

Kristín segir öll lög plötunnar fjalla um náin sambönd og þá ekki bara við annað fólk heldur líka náið samband hennar við sjálfa sig. Platan hefur að geyma lög sem samin voru fyrir rödd og píanó á 12 ára tímabili, frá árinu 2005 til 2017, og má því segja að aðdragandinn að útgáfu plötunnar hafi verið býsna langur.

Kristín Anna Valtýsdóttir.
Kristín Anna Valtýsdóttir. Ari Magg

En hvers vegna varð þessi plötutitill fyrir valinu, Ég hlýt að vera djöfullinn í íslenskri þýðingu? „Við Kjartan Sveinsson, tónskáld og fyrrverandi Sigur Rósar-maður sem tók plötuna upp með mér, sátum úti á svölum frekar snemma í upptökuferlinu og vorum búin að leggja grunninn að flestum lögunum. Þá spurði hann mig hvað platan ætti að heita og ég svaraði bara með þessum titli án þess að hafa hugsað neitt út í það. Hún hét þessu nafni áfram og svo seinna í ferlinu samdi ég lag með þessum titli, „I Must be the Devil“, sem er ekki á plötunni. En ljóðið úr laginu er innan á plötukápunni og þar má kannski finna eina útskýringu á þýðingu titilsins, eina af mörgum.“

Persónuleg og lýrísk

Elsta lagið á plötunni og jafnframt það fyrsta var samið árið 2005 þegar Kristín var enn í hljómsveitinni múm. Hún hætti í þeirri sveit ári síðar og hélt áfram að semja tónlist á píanó og flytja við tækifæri undir nafninu Kría Brekkan. Það var svo fyrir hvatningu Ragnars Kjartanssonar og Ingibjargar Sigurjónsdóttur að Kristín hóf að vinna að plötunni sem hefur að geyma níu lög en 18 voru þó fullkláruð og 20 tekin upp. „Þetta er ákveðinn bálkur sem nær yfir langt tímabil,“ útskýrir Kristín.

Spurð hvernig hún flokki þessa tónlist segist hún ekki vita hvernig best sé að gera það. „En ég veit að hún er persónuleg og lýrísk og að þetta er tónlist sem verður ekki búin til með gervigreind, þetta er allt lifandi flutningur, ég spila á flygil og syng og allur grunnurinn er þessi eina taka af þeim flutningi.“

I Must Be the Devil verður aðgengileg á helstu tónlistarveitum og hana má einnig kaupa á vínil.

Viðtalið má lesa í heild í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg