Kevin Spacey sýknaður í kynferðisbrotamáli

Kevin Spacey hefur verið sýknaður í kynferðisbrotamáli.
Kevin Spacey hefur verið sýknaður í kynferðisbrotamáli. AFP/Daniel Leal

Kviðdómur í Lundúnum hefur sýknað bandaríska leikarann Kevin Spacey af kynferðisbrotakærum, en hann var sakaður um að hafa brotið kynferðislega á fjórum karlmönnum á árunum 2001 til 2013. 

Réttarhöld yfir Spacey hófust hinn 28. júní síðastliðinn og stóðu yfir í fjórar vikur. Ákæruliðir á hendur honum voru tólf talsins, en Spacey neitaði öllum ásökunum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Spacey er kærður og ásakaður um kynferðisbrot gagnvart karlmönnum, en á síðustu árum var hann tvisvar kærður í Bandaríkjunum og var í öðru málinu sýknaður og var hinu málinu vísað frá. Spacey hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt að setjast niður og gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú raunverulega sækist eftir í lífinu. Leitaðu upplýsinga um það sem þú þarft að fá að vita.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt að setjast niður og gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú raunverulega sækist eftir í lífinu. Leitaðu upplýsinga um það sem þú þarft að fá að vita.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Loka