Kennarastofan er ný íslensk leikin þáttaröð sem verður frumsýnd á morgun, fimmtudaginn 4. janúar, í Sjónvarpi Símans. Stikla úr þættinum hefur nú verið birt.
Þættirnir fjalla um klaufalegu skólastýruna Valdísi. Hún reynir að brjóta sig út úr nánast óbrjótanlegri skelinni, sem hefur haldið aftur af henni alla ævi, þegar hún fellur fyrir nýjaa tónlistarkennaranum í skólanum sem er algjör andstæða hennar.
Með aðalhlutverk fara Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi.
Í stiklunni má sjá Helenu, sem leikin er af Eygló Hilmarsdóttur, segja frá því hvernig magaermi hefur haft margvísleg áhrif á tilhugalíf hennar.