Á morgun verður stuttmyndin Köld jól frumsýnd í Bíó Paradís kl. 15. Leikstjórinn, Magnús Gíslason, er 15 ára og hefur áður frumsýnt myndina Angurværð um einelti, skólamál, flóttamenn og sjálfsmorð.
Í tilkynningu segir að Köld jól fjalli um þrjú systkini, Kríu, Stefán og Kristrúnu sem verða fyrir ofbeldi af hálfu föður síns sem glímir við áfengisvanda. Þetta er áhrifamikil mynd um erfitt málefni og eru nær allir leikararnir undir 16 ára aldri. Myndin er á íslensku með enskum texta.
Myndin er hlut af Barnamenningarhátíð og aðgangur ókeypis.