Schröder verður væntanlega formaður þýskra jafnaðarmanna

Lafontaine og Schröder.
Lafontaine og Schröder. Reuters

Gerhard Schröder kanslari Þýskalands mun væntanlega taka við formennsku í þýska Jafnaðarmannaflokknum af Oscar Lafontaine sem sagði af sér í dag um leið og hann sagði af sér embætti fjármálaráðherra landsins.

Schröder hefur ekki sagt opinberlega að hann muni sækjast eftir formennsku í flokknum en heimildarmenn Reutersfréttastofunnar segja að það verði líklegasta niðurstaðan.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert