Kosningum frestað í Pakistan

Ljóst er að þingkosningum verður frestað í Pakistan, samkvæmt upplýsingum AFP fréttastofunnar. Er talið líklegt að þeim verði frestað um að minnsta kosti fjórar vikur en kosningarnar áttu að fara fram þann 8. janúar. Á morgun verður gefið út hvaða dag þær munu fara fram, samkvæmt AP fréttastofunni.

Bilawal Bhutto, 19 ára sonur Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, tók við formennsku í Þjóðarflokknum í gær. Benazir var myrt á fimmtudag og hefur breska ríkisútvarpið, BBC, það eftir háttsettum meðlimum í flokknum, að Benazir hafi lagt til í bréfi fyrir dauða sinn að Zardari tæki við af henni. Zardari hafi síðan mælt með Bilawal.

Mun Zardari verða hægri hönd sonar síns við formennsku í flokknum sem hyggst bjóða fram í fyrirhuguðum þingkosningum.

Zardari, sem kallaði eftir rannsókn Sameinuðu þjóðanna á morðinu á konu sinni, skoraði jafnframt á Nawaz Sharif, einn helsta leiðtoga stjórnarandstöðunnar, um að hætta við að sniðganga kosningarnar.
  

Feðgarnir Asif Ali Zardari og Bilawal Bhutto
Feðgarnir Asif Ali Zardari og Bilawal Bhutto Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert