Fer næstum lóðrétt í loftið

Skjáskot

Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur birt myndskeið sem sýnir nýja flugvél framleiðandans, Boeing 787-9 Dreamliner, taka næstum lóðrétt á flug. Myndskeið hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.

Vélin, sem mun fljúga fyrir Vietnam Airlines, er ein fjölmargra sem munu taka þátt í flugsýningu í París sem hefst á næstu dögum. Um er að ræða eina stærstu flugsýningu í heimi.

Víetnamska flugfélagið á von á því að fá afhentar nítján Boeing 787-9 vélar, en þessi er sú fyrsta. Hún tók í fyrsta sinn á loft þann 14. maí.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert