Obama brast í söng

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. AFP

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hélt í kvöld áhrifaríka ræðu við minningarathöfn Clementa Pinckney, prestsins og þingmannsins sem var einn þeirra sem féllu í skotárás hins 21 árs gamla Dylann Roof fyrir níu dögum.

Undir lok ræðunnar brast forsetinn í söng. Viðtökurnar voru góðar og tók allur salurinn undir með honum, en hann söng lagið Amazing Grace, eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.

Dylann skaut níu manns til bana í Emanuel-kirkjunni í borg­inni Char­lest­on í Suður-Karólínu í Banda­ríkj­un­um. Eru morðin rannsökuð sem hatursglæpur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert