Mótmælin í Hamborg slegin af

Lögregla sprautar vatni á svartklæddan mótmælanda.
Lögregla sprautar vatni á svartklæddan mótmælanda. AFP

Skipulögð mótmæli í Hamborg, þar sem saman hafa komið í kringum 12 þúsund manns, hafa nú verið slegin af eftir að í brýnu sló á milli lögreglu og um þúsund manna hóps harðkjarna vinstrimanna.

Þýska lögreglan greinir frá því á Twitter að skipuleggjendur mótmælanna hafi aflýst þeim. Lögreglan hefur verið mjög virk að tjá sig um aðstæður á Twitter en sjá má eina af fjölmörgum færslum hennar hér að neðan.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert