Tvær sprengingar heyrðust

Flutningabíll á leið til verksmiðjunnar í gær.
Flutningabíll á leið til verksmiðjunnar í gær. AFP

Sprengingar hafa heyrst frá efnaverksmiðju skammt fyrir utan Houston. Björgunarstarfsmenn heyrðu tvær sprengingar í morgun og sáu svartan reyk stíga upp úr verksmiðjunni.

Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu kemur fram að það hafi fengið að vita af tveimur sprengingum og svörtum reyk í morgun.

Ákveðið hefur verið að rýma svæði innan þriggja kílómetra radíuss frá verksmiðjunni. 

Verk­smiðja Arkema-sam­steyp­unn­ar í Cros­by lenti í vand­ræðum með kæli­búnað verk­smiðjunn­ar í úr­hell­inu sem fylgdi felli­byln­um Har­vey en nauðsyn­legt er að halda efna­blönd­un­um kæld­um í verk­smiðjunni. Vegna þessa er al­gjör­lega úti­lokað að koma í veg fyr­ir að það kvikni í verk­smiðjunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert