Margra ára uppbyggingarstarf fram undan

Björg­un­araðgerðir standa enn yfir í Texas, viku eftir að Harvey …
Björg­un­araðgerðir standa enn yfir í Texas, viku eftir að Harvey gekk á land við Mexíkóflóa. AFP

Houston verður mörg ár að jafna sig á hitabeltisstorminum Harvey. Þetta segir Greg Abbott, ríkisstjóri í Texas, í samtali við BBC. Vika er síðan stormurinn gekk á land við Mexíkóflóa.  

„Þetta verður umfangsmikið hreinsunarstarf,“ sagði Abbott í samtali við fréttamann frá ABC sjónvarpsstöðinni.

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, mun að öllum líkindum fara fram á 5,9 milljarða dollara fari til aðstoðar nauðstöddum, eða sem nemur um 620 milljarða króna. Yfirvöld í Texas telja að þörf sé á mun meiri fjármunum, allt að 125 milljörðum dollara, í uppbyggingarstarf.

Þingið kemur saman í næstu viku eftir mánaðarhlé og búist er við að beiðnin verði afgreidd fljótt. Þá hefur Trump tilkynnt að hann muni styrkja hjálparsjóðinn um eina milljón dollara úr eigin vasa.

Styrk­ir fórn­ar­lömb­in um millj­ón doll­ara

Yfir 40 manns hafa látist af völdum fellibyljarins og afleiðingum hans.

Björg­un­araðgerðir standa enn yfir í rík­inu og hafa björgunarsveitarmenn í nægu að snúast í borginni Beaumont um þessar mundir, en vatnlaust er í borginni. Komið hefur verið upp drykkjarstöð þar sem íbúar borgarinnar, sem eru 120.000 talsins, geta sótt drykkjarvatn.

Talið er að rúmlega 93.000 heimili hafi eyðilagst í storminum það sem af er. Um 32.000 manns dvelja nú í neyðarskýlum sem hefur verið komið upp víðs vegar í ríkinu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Greg Abbott, ríkisstjóri í Texas ræddu …
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Greg Abbott, ríkisstjóri í Texas ræddu málin í Texas í vikunni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert