Enska knattspyrnufélagið Arsenal vill fá til liðs við sig Hollendinginn unga Jorrel Hato.
Hato er átján ára varnarmaður sem hefur byrjað alla 32 leiki Ajax í hollensku deildinni á yfirstandandi tímabili.
Samkvæmt hinum áreiðanlega Fabrizio Romano leggur Arsenal mikið kapp við að fá leikmanninn í sínar raðir í sumar til að styrkja öftustu línu.