Dæmdur til greiðslu miskabóta fyrir ummæli á bloggi
Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur til greiðslu miskabóta að upphæð 300.000 krónur fyrir ummæli sem hann viðhafði á bloggi sínu. Einnig var honum gert að útmá ummælin af vefsvæðinu og birta þar forsendur og dómsorð dómsins. Þetta mun vera fyrsti dómur af þessu tagi um bloggskrif.
Þá voru ummælin dæmd dauð og ómerk og ákærða gert að greiða stefnandanum hálfa milljón króna í málskostnað.
Stefnandi greindi frá því að þrátt fyrir ítrekuð tilmæli bæði af sinni hálfu og stjórnenda bloggsvæðisins blog.is hafi stefndi ekki fjarlægt ummælin sem málið var höfðað út af. Því hafi ekki verið annar kostur en fara í mál.
Í niðurstöðu dómsins segir að óumdeilt sé að stefndi væri „höfundur þeirra skrifa þar sem umdeild ummæli birtust og ber hann ábyrgð á þeim.“ Ummælin um stefnandi væru ærumeiðandi, óviðurkvæmileg og tilhæfulaus og til þess fallin að sverta ímynd hans.
Teljast þau varða við 235. gr. laga nr. 19/1940.
Tildrög málsins voru þau, að í aðdraganda þingkosninganna á fyrri hluta síðasta árs skrifaði Gaukur Úlfarsson á bloggi sínu ummæli um Ómar R. Valdimarsson.
Sagði Gaukur m.a. að Ómar væri „Aðal Rasisti Bloggheima.“ Einnig sagði hann: „Nú hef ég fundið einn til, svæsnari en hinir lagðis saman, talsmann Impreglio (sic) á Íslandi,“ og: „Ég mæli því með því að þið ágæta fólk látið í ykkur heyra á kerfinu hans svo að útlendinga hatur hans standi þar ekki óhaggað.“ Voru þessi ummæli dæmd dauð og ómerk.
Einnig sagði: „Sem betur fer skapaði ég mér vinnu þar sem ég þarf ekki að svara fyrir alþjóðlegt glæpagengi í fjölmiðlum.“ Dómurinn féllst ekki á kröfu um ómerkingu þessara ummæla.
Dómurinn féllst jafnframt á kröfu Ómars um að Gaukur skuli birta dómsniðurstöðuna á blogginu sínu, og byggir sú niðurstaða á ákvæði laga frá 1956 um prentrétt. Ákvæðið taki til birtingar efnis í blöðum eða tímaritum en ekki til efnis er birt sé á vefsíðum.
„Ekki er til að dreifa lagaákvæðum um slík tilvik. Telja verður að efnislega sé um sambærileg tilvik að ræða enda staðreynd að mörg dagblöð eru gefin út á vefmiðlum,“ segir í dómnum.
Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp dóminn.
Bloggað um fréttina
-
Björn Heiðdal Ekki lemja Ómar! -
Linda litla Bloggarar ! Varið ykkur. -
Elvar Atli Konráðsson Ekki sama hvað er skrifað -
Heimir L Fjeldsted Ég stend við hvert orð sem ég hef látið falla. -
Marta B Helgadóttir Orð geta skaðað -
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm Þörf áminning -
Elvar Geir Sævarsson Kærir Birkir Jón Ómar -
Ólína Þorvarðardóttir Orðum fylgir ábyrgð -
Már Högnason Er hægt að kæra tilvitnun? -
Magnús Geir Guðmundsson Víti til varnaðar, en... -
Gísli Bergsveinn Ívarsson Núna þarf "starfsmaður í þjálfun" að passa sig -
Snorri Bergz Dómsmál: Bloggari gegn bloggara. Bloggari vann! -
Salvör Kristjana Gissurardóttir Riddari tjáningarfrelsisins -
Magnús Helgi Björgvinsson Var Ómar ekki á hálum ís líka á þessum tíma -
Halldór Þórðarson/dóritaxi Sekur um meiðyrði á bloggi -
Heiður Þórunn Sverrisdóttir Gættu orða þinna. -
Sigríður Gunnarsdóttir Vonandi örðum til viðvörunar -
Jónína Benediktsdóttir Nafnlausir bloggarar ? -
Ómar Ragnarsson TÍMAMÓT Í BLOGGHEIMUM. -
Örvar Már Marteinsson Gott mál -
Sveinn Ingi Lýðsson Dómur fallinn. Umhugsunarefni fyrir þá bloggara sem fóru offari í ... -
jósep sigurðsson Aðgát skal höfð í nærveru sálar. -
Alexander Kristófer Gústafsson Hvað er að þessu landi? -
Auðun Gíslason Vefjahöttur? -
Stefán Friðrik Stefánsson Bloggari dæmdur - Gaukur tapar fyrir Ómari
Innlent »
Sunnudagur, 20.5.2012
- Bílvelta í Blönduhlíð
- Verða kynnt fyrir drottningunni
- Slasaðist alvarlega í Aðalvík
- Vonast til að samstarfið gangi upp
- Húsið jafnvel ónýtt
- Með skrifstofu í ferðatöskunni
- Eldsvoði á Seyðisfirði
- Gengur vel hjá Íslendingum í Bakú
- Húsnæðiskerfinu umbylt
- Íslendingar vöknuðu við skjálftann
- Þyrlan á leið til Reykjavíkur
- Ráðist á heimasíðu Landgræðslunnar
- Eldri borgarar sýndu handverk sitt
- Björgunarmenn komnir á slysstað
- Nýtt blað um áhrif aðildar að ESB á landbúnað
- Hrapaði við eggjatöku
- Margir á grásleppu
- Sambland ösku- og sandfoks
- Hannes klárar söfnun í dag
- Hátækniherskip í Reykjavíkurhöfn
- Valhúsaskóli fór með sigur af hólmi
- Segja Eyþór njóta fulls trausts
- „Semja látlaust við aðra flokka“
- Hent fram af svölum á fjórðu hæð
- Með alvarlega áverka eftir líkamsárás
- Birgitta og aðrir aðgerðasinnar lýsa yfir sigri
- Ísfisktogarinn Frosti til sýnis á Grenivík
- Hefur ekki áhyggjur af skoðanakönnunum
-
Á leið á alþjóðlegt Legómót
- Íslensk bók rædd í Westminster
- Leitað að ferðalöngum á Austurlandi
- Leki kom að vélarvana skipi
- Ökumenn í vímu og til vandræða
- Kýldi mann fyrir framan lögreglu
- Á gjörgæslu eftir líkamsárás
Laugardagur, 19.5.2012
- 20-30 júdógöllum stolið
- Fá heimild til að vinna með erfðabreytt bygg
- Heldur fljótlega til veiða á ný
- Stikun leiða vörn gegn utanvegaakstri
-
Átta nýir árgangar kjósa forseta
- Potturinn fimmfaldur næst
- Segja flóttamenn misnota okkur
- Mannréttindi og öryggismál rædd
- WSJ: Vestmannaeyjar og hrunið
- Fráleitt að meirihlutinn sé óstarfhæfur
- Endurkjörinn formaður Blindrafélagsins
- Efast um traust á oddvitanum
- Banaslys í Skorradal
- Ævintýraleg ferð yfir Grænland
- Forsetakosningar 2012
- Rannsókn sérstaks saksóknara á Al-Thani máli
- Skotárás í Bryggjuhverfinu
- Bar út barn
- Ákærð fyrir að hafa deytt nýfætt barn
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 12. júlí 2008, Innlent Vísað til máls Þorgeirs gegn Íslandi
- Miðvikudagur, 22. október 2008, Innlent Refsikröfu vegna ummæla vísað frá
- Miðvikudagur, 27. febrúar 2008, Innlent Gaukur mun áfrýja
- Laugardagur, 5. apríl 2008, Innlent Ætlar að áfrýja til Hæstaréttar
- Þriðjudagur, 24. júní 2008, Innlent Fór með rifrildið fyrir dóm
-
Zoran: Vorum betra liðið
-
Þórður: Frammúr okkar vonum
-
Garðar: Ljúft að skora
-
Magnaður hringmyrkvi
-
Kristján: Frammistaðan verðskuldaði stig
-
Rúnar: Erfitt að spila við Valsmenn
-
Ólafur: Fengum færi til að setja mark
-
Ólafur Páll: FH skorar nú oftast




































