Fjöldi útkalla á Akureyri

Mikill snjór er á Akureyri.
Mikill snjór er á Akureyri. mbl.is/Skapti

Skyggni og veður hefur lítið breyst á Akureyri í dag. Skyggnið hefur verið milli 100 og 400 metrar. Reynt er að halda aðalgötum opnum en gengur misjafnlega. Íbúðargötur eru flestar þungfærar eða ófærar, að sögn lögreglunnar. Ekki hefur verið tilkynnt um nein óhöpp.

Lögreglan hefur fengið fjölda útkalla og brugðist við þeim ásamt Björgunarsveitinni Súlum. Meðal verkefna er að koma heilbrigðisstarfsfólki til og frá vinnu. Ekkert er að draga úr útköllunum. Engin umferð er til og frá Akureyri og allt ófært þar í kring.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert