Börn leiki sér ekki úti í öskunni

Fótspor í öskunni í Skaftafellsýslu.
Fótspor í öskunni í Skaftafellsýslu. mbl.is/Jónas Erlendsson

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands vill beina þeim tilmælum til leiksskóla, skóla og annarra umsjónarmanna barna, að láta þau ekki leika sér úti meðan ástandið er eins og það er vegna öskufalls frá Grímsvatnagosinu.

Stofnunin  segir, að útivera sé ekki talin almennt hættulegt en við leik utandyra þyrlast upp ryk sem er alltaf nálægt vitum lítilla barna.

Viðmiðunarmörk fyrir svifryk í andrúmslofti eru 50 míkrogrömm í rúmmetra á sólarhring.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert