Heldur að birta á Kirkjubæjarklaustri

Farið er að birta yfir Kirkjubæjarklaustri. Þessi mynd var tekin …
Farið er að birta yfir Kirkjubæjarklaustri. Þessi mynd var tekin nú síðdegis. Ernir Eyjólfsson

Öllu bjartara er nú á Kirkjubæjarklaustri heldur en fyrr í dag. Skyggnið er þó enn slæmt - sennilega um fimmtíu metrar - enda mikil aska í loftinu og ansi hvasst.

Fáir eru á ferð, enda lítið ferðaveður. Þeir sem þurfa að aka um vegi bæjarins fara hægt yfir.

Dagurinn hefur gengið nokkurn veginn eins og gærdagurinn. Báða daga hefur birti til um klukkan tvö. Í dag er þó meiri vindur en í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert