Akureyri: svolítið öskufall í nótt

mbl.is/Skapti

Aska hélt áfram að falla á Akureyri í nótt. Á myndunum, sem teknar voru nú um hálf átta leytið, er hvítur diskur sem settur var út í gærköldi og einnig má sjá vélarhlíf á grárri bifreið.

Ösku varð einnig vart á Húsavík  í gærkvöldi. Bæjarbúar sáu ösku á bílum sínum og
diskum sem þeir settu út. Lögreglan varð  vör við ösku á lögreglubíl sem stóð við lögreglustöðina.

mbl.is/Skapti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert