Flug Icelandair á áætlun að mestu

Mikið var að gera í Leifsstöð í gærkvöldi þegar Keflavíkurflugvöllur …
Mikið var að gera í Leifsstöð í gærkvöldi þegar Keflavíkurflugvöllur var opnaður á ný. mbl.is/Hilmar Bragi

Icelandair segir, að flug félagsins verði samkvæmt áætlun í dag, ef frá eru talin morgunflug til London og til Manchester/Glasgow. Alls er um að ræða 28 flug til og frá áfangastöðum Icelandair í Evrópu og Bandaríkjunum.

Félagið stefnir að því að fljúga samkvæmt áætlun til London síðdegis, auk þess sem aukaflug var farið til og frá borginni í gærkvöldi.

Í mörgum tilfellum verði þó um seinkun á flugi að ræða og eru farþegar hvattir til þess að fylgjast vel með fréttum og komu- og brottfarartímum á textavarpi og vefmiðlum og á www.icelandair.is www.twitter.com/icelandair www.facebook.com/icelandair.

Icelandair gerir ráð fyrir að flestir farþegar félagsins, sem lent hafa í töfum vegna eldgossins, verði komnir á áfangastað í lok dags með þeim ráðstöfunum sem félagið hafi gert, m.a. að flytja fjölda tengifarþega yfir á flug annarra flugfélaga yfir Atlantshafið og bæta við aukaflugum. 






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert