ESB endurskoði bann við innflutningi selaafurða

Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins og þingnefnd Evrópuþingsins funduðu nýlega í Nuuk …
Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins og þingnefnd Evrópuþingsins funduðu nýlega í Nuuk á Grænlandi.

Vestnorræna ráðið skorar á ESB að endurskoða bann sitt við innflutningi selafurða til sambandsins og telur að sambandið ætti í auknum mæli að taka þátt í björgunarsamstarfi á Norðuratlantshafi. 

Þetta kom fram á þriðja sameiginlega fundi forsætisnefndar Vestnorræna ráðsins og þingnefndar Evrópuþingsins sem haldinn var nýlega í Nuuk á Grænlandi, að því er segir í tilkynningu.

Fram kemur að Vestnorræna ráðið hafi gagnrýnt ESB fyrir að banna innflutning selafurða til sambandsins. Forsætisnefndin hafi bent á að bannið hafi nú þegar haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar fyrir fjölskyldur veiðimanna og smærri byggðir veiðimanna á Grænlandir. Forsætisnefndin hafi lagt á það áherslu í þessu sambandi að selveiðar í Grænlandi séu sjálfbærar. 

Segir að Evrópuþingnefndin hafi upplýst að banninu sé fyrst og fremst ætlað að vinna gegn ákveðnum veiðiaðferðum í Kanada. Tilgangurinn með undanþágu sem Inúítum væri tryggð í reglunum hefði verið að þeir gætu komið skinnum sínum í verð í sambandinu.  Það hefði því ekki verið ætlunin að stuðla að söluhruni á grænlenskum selskinnum.  Evrópuþingnefndin lýsti yfir vilja til þess að taka málið upp á vettvangi Evrópuþingsins.  Nefndin mundi vinna að því að efnt yrði til umræðna um málið hjá sjávarútvegsnefnd þingsins þar sem kallað yrði eftir umsögnum og áliti þar til bærra aðila.

Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins fagnaði nýjum samningi ríkisstjórna Norðuskautsráðsins um björgunarmál en tók fram að jafnframt væri mikilvægt að huga að því að þeir sem sinna björgunarmálum á svæðinu hafi til þess fullnægjandi tækjabúnað og mannafla svo hægt verði að tryggja öflugan björgunarviðbúnað á svæðinu.  Forsætisnefndin lagði jafnframt áherslu á að ESB íhugaði aukna þátttöku í björgunarsamstarfi á Norðuratlantshafi.  

Evrópuþingnefndin hafði af því áhyggjur í ljósi sparnaðar sem alls staðar á sér stað hjá hinu opinbera um þessar mundir að erfitt geti reynst að tryggja nauðsynlega fjármögnun til að tryggja að allir þættir samningsins komi til framkvæmda.  Nefndin sagðist mundu leggja á þetta áherslu í eftrifylgni sinni.

Nefndirnar funda árlega til að ræða sameiginleg hagsmunamál.  Forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins skipa Ólína Þorvarðardóttir formaður, og varaformennirnir Kári P. Højgaard þingmaður frá Færeyjum og Josef Motzfeldt forseti Grænlandsþings.  Evrópuþingnefndina skipuðu Pat the Cope Gallagher formaður (Írlandi), Petru Luhan (Rúmeníu), Zuzanna Brzobohata (Tékklandi), Alyn Smith (Englandi) og Sabine Wils (Þýskalandi).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert