Hæsta einkunn í Flensborg

Nýstúdentar í Flensborg.
Nýstúdentar í Flensborg.

Flensborgarskóli útskrifaði 90 nemendur nú í vor og samtals 161 nemanda á skólaárinu.

Herbjörg Andrésdóttir var dúx skólans að þessu sinni,  með einkunnina 9,73 en það er hæsta meðaleinkunn sem gefin hefur verið á stúdentsprófi við skólann. Arndís Eva Finnsdóttir var semidúx en hún fékk 9,40. Báðar luku þær Herbjörg og Arndís námi á þremur árum.

Tveir nemendur til viðbótar voru með yfir 9 í meðaleinkunn. Þessir nemendur og fleiri fengu fjölmörg verðlaun og viðurkenningar frá skólanum og öðrum aðilum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert