Par braust inn í vídeóleigu

Brotist var inn í Seljavideo í Rangárseli í Seljahverfi á fjórða tímanum í nótt. Vegfarandi varð var við innbrotið og tilkynnti um það.

Þegar lögregla kom á staðinn hitti hún þar fyrir par, karl og konu um tvítugt.

Þau gistu fangageymslur lögreglu í nótt og verða yfirheyrð í dag.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert