Verksmiðja með jákvæð áhrif

Tölvumynd af væntanlegu verksmiðjusvæði.
Tölvumynd af væntanlegu verksmiðjusvæði.

Fyrirtækið Atlantic Green Chemicals ehf. (AGC) telur að fyrirhuguð framkvæmd við byggingu og síðar rekstur lífalkóhól og glýkólverksmiðju á iðnaðarsvæði Reykjanesbæjar við Helguvíkurhöfn muni hafa óveruleg áhrif á umhverfi en verulega jákvæð áhrif á samfélag og fjölbreytileika í atvinnulegu tilliti á svæðinu.

Þetta kemur fram í frummatsskýrslu sem AGC hefur sent Skipulagsstofnun vegna mats á umhverfisáhrifum verksmiðjunnar.

Í skýrslunni segir, að í verksmiðjunni eigi að framleiða umhverfisvænar og grænar efnavörur úr endurnýjanlegum hráefnum frá landbúnaði. Um sé að ræða nýjan rekstur sem ekki hafi verið starfræktur á Íslandi áður. Starfsemin feli hvorki í sér losun á koldíoxíði né á öðrum gróðurhúsalofttegundum.

Til stendur að reisa verksmiðju, rafgreiningarstöð, þjöppustöð, aðstöðu vegna lífgasframleiðslu og starfsmannaaðstöðu auk stálvirkja og lagna. Ennfremur verða byggðir geymar fyrir geymslu á hrávöru og afurðum auk þróar til varnar lekum frá tönkum. 

Þá segir að framkvæmd verkefnisins og rekstur verksmiðjunnar muni blása lífi í atvinnumál sveitarfélagsins. Við undirbúning og framkvæmdir við byggingu verksmiðjunnar verði til um 150 störf, en þegar reksturinn verði hafinn skapist 25-30 störf á fjölbreyttum vettvangi. Í fullri stærð skapi verksmiðjan um 50 heilsársstörf. Bæði verði þörf á starfsfólki með háskólamenntun, iðnaðarmenntun, verslunarmenntun og einnig skapist störf þar sem fagmenntunar verður ekki krafist.

Frummatsskýrslan

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert