Keppt á trukkum og rútum

Sigurvegarar í ökuleikni.
Sigurvegarar í ökuleikni. www.brautin.is

Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á trukkum og rútum fór fram í dag. Keppnin var mjög spennandi og munaði aðeins örfáum sekúndum á efstu mönnum. Ökumenn frá Íslandspósti báru sigur úr býtum í öllum flokkum.

Fimmtán keppendur tóku þátt og kepptu ýmist á rútum og/eða trukkum. Þeir tóku þátt sem einstaklingar en mynduðu einnig lið þeirra fyrirtækja sem þeir starfa hjá. Páll H. Halldórsson, formaður Brautarinnar, lýsti yfir mikilli ánægju með daginn sem og keppendur en keppni sem þessi sé nauðsynleg þar sem hún skerpi á því sem ökumennirnir kunna fyrir.

Menn verði betri ökumenn eftir að hafa tekið þátt í ökuleikni, bæði þeir sem standa sig best og sigra en ekki síður hinir. Öll akstursþjálfun skili sér að lokum til manna sem betri ökumenn í hinni almennu umferð. Það var Brautin – bindindisfélag ökumanna sem stóð fyrir keppninni í samstarfi við Öskju, Sjóvá, Vífilfell, Ökukennarafélag Íslands og Eimskip. Þá lánuðu Snæland Grímsson, Kynnisferðir og Ölgerðin Egill Skallagrímsson bifreiðar til að keppa á og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert