Hætta við að kaupa Perluna

Hópur fjárfesta sem gerði kauptilboð í Perluna hefur fallið frá tilboði sínu. Garðar K. Vilhjálmsson lögmaður segir í yfirlýsingu fyrir hönd hópsins að borgaryfirvöld séu að eyðileggja söluferli Perlunnar.

Þetta kemur fram í frétt á RÚV. Skrifaði var undir viljayfirlýsingu við hópinn í desember og var honum gefinn frestur til 31. mars til að falla frá fyrirvörum í tilboði sínu, sem hljóðaði upp á 1.688,8 milljónir króna. Hópurinn fór fram á framlengingu á viljayfirlýsingunni, en hefur nú ákveðið að hætta við kaupin.

Sex tilboð bárust í Perluna þegar hún var auglýst til sölu í haust. Hæsta tilboðið átti hópur innlendra fjárfesta sem starfað hafa á sviði ferðaþjónustu og húsbygginga. Samkvæmt fyrirvörum við tilboðið var gert ráð fyrir að byggt yrði við Perluna, en það var borgarinnar að taka ákvörðun um hvort það verði heimilað.

Borgaryfirvöld hafa nú ákveðið að halda hugmyndasamkeppni um skipulag Öskjuhlíðarinnar.

Perlan, sem er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, hefur verið rekin með tapi frá því hún var byggð. Unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu Orkuveitunnar og sú áætlun sem unnið er eftir gerir ráð fyrir sölu eigna, m.a. Perlunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert