Hótel í hjarta Húsafells

Nýtt hótel sem verið er að byggja í Húsafelli er hannað sem miðstöð útivistar og náttúruskoðunar í uppsveitum Borgarfjaðrar og tekið tillit til þarfa göngufólks og annars áhugafólks um náttúruna.

Sú mikla fjölgun erlendra ferðamanna sem verið hefur til landsins skapar grundvöll fyrir byggingu og rekstur heilsárshótels í Húsafelli, eins og víðar um landið, að sögn Þórðar Kristleifssonar, verkefnisstjóra hótelbyggingarinnar. Kristleifur Þorsteinsson lét gera frumdrög að móteli í Húsafelli á árinu 1988 og seinna undirbjó hópur fjárfesta hótelbyggingu. „Það er ekki fyrr en nú að hægt er að gera þetta, fyrr hefur ekki verið rekstrargrundvöllur,“ segir Bergþór Kristleifsson, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustunnar í Húsafelli sem stendur að framkvæmdinni.

Stefnt er að opnun 15. júní á næsta ári. Til þess að það takist þarf að halda vel á spöðunum. Reiknað er með að tuttugu manns verði að störfum við uppbygginguna í sumar og vetur.

Fellt inn í landið

Hótelið er fellt inn í birkiskóginn í hjarta Húsafells, á milli þjónustumiðstöðvarinnar og sundlaugarinnar. Í miðjunni er tveggja hæða þjónustubygging sem grafin er niður í hraunið. Þar verður meðal annars 100 manna veitingastaður á efri hæð. Á þeirri neðri verður fjölnotasalur og aðstaða fyrir útivistarfólk, til dæmis þurrkaðstaða, geymslur fyrir gönguskó og annan búnað. Þar er útgangur að sundlauginni. Út frá þessari miðju eru gistiálmur með alls 36 rúmgóðum gistiherbergjum. Möguleiki er að bæta við svo þarna verði 50 herbergja hótel.

Í Húsafelli eru um 170-180 sumarhús og gestkvæmt á sumrin. Húsafellsfjölskyldan hefur byggt upp aðstöðu í kringum hana, til dæmis rafmagnsframleiðslu, hita- og kaldavatnsveitu, sundlaug, golfvöll og flugvöll. Í Húsafelli býr og starfar listamaðurinn Páll Guðmundsson og er sótt í að skoða listaverk hans. Húsafell hefur raunar lengi heillað listamenn. Þar málaði Ásgrímur Jónsson margar myndir. Verið er að merkja gönguleiðir í Húsafellslandi og útbúa gönguleiðakort og Ásgrímsstaðirnir verða einnig merktir.

Stutt er í hellana miklu í Hallmundarhrauni og upp á Langjökul þar sem rekin er töluverð ferðaþjónusta. Búist er við að hún eflist mjög þegar Íshellirinn sem þar er verið að gera verður tekinn í notkun næsta vor.

Breyting í aðsigi

Það verður mikið verkefni fyrir Húsafellsfjölskylduna að fylla 36 herbergi allt árið. Bergþór tekur þó fram að rekstraráætlanir miðist við varfærnar forsendur um nýtingu hótelsins. Þórður bætir því við að aðalmálið sé að ná viðskiptum yfir veturinn. Þar treystir hann á að ná til útivistarfólks.

Bergþór segir að Vesturland hafi ekki verið nýtt eins og skyldi við móttöku erlendra ferðamanna. Telur hann að breyting sé að verða á því enda hafi svæðið allt til að bera sem ferðafólk sækist eftir, ekki síður en Suðurland. „Allt í einu verður Vesturland komið inn. Það gerist innan fárra ára. Hér í uppsveitunum höfum við Reykholt, jöklana, Kaldadal og hellana. Það þarf að byggja upp innviðina og það er byrjað,“ segir Bergþór.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert